Johann Wolfgang von Goethe
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Johann Wolfgang von Goethe (28. ágúst 1749 – 22. mars 1832) var þýskur rithöfundur, vísindamaður og heimspekingur sem skrifaði meðal annars leikritið Fást, skáldsöguna Raunir Werthers unga og Zur Farbenlehre um litafræði. Hann var hluti af þýsku bókmenntahreyfingunni Sturm und Drang við upphaf rómantíska tímabilsins.