Kjördæmi Íslands
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ísland skiptist í sex kjördæmi sem kjósa fulltrúa á Alþingi. Núverandi skiptingu var komið á með stjórnarskrárbreytingu árið 1999 og var ætlað að jafna vægi atkvæða milli landshluta frá því, sem áður var, en allt frá því að þéttbýli fór að myndast á Íslandi hefur því verið mismunað með hlutfallslega minna atkvæðavægi en dreifbýlinu. Nýja kjördæmaskiptingin byggir á þremur kjördæmum á höfuðborgarsvæðinu og þremur á landsbyggðinni. Misræmi í atkvæðavægi er ennþá til staðar (sem dæmi má nefna að í Alþingiskosningunum 2003 hefðu kjördæmin þrjú á Höfuðborgarsvæðinu átt að fá 5-6 þingsætum fleira en þau fengu, ef miðað hefði verið við fjölda á kjörskrá) en ákvæði í stjórnarskrá segja, að ef fjöldi kosningabærra manna á bakvið hvert sæti í einu kjördæmi er orðinn helmingur þess sem hann er í því kjördæmi þar sem flestir eru á bakvið hvert þingsæti þegar gengið er til kosninga, skal færa eitt kjördæmissæti á milli þeirra fyrir næstu kosningar. Kjördæmi getur þó ekki haft færri en 6 kjördæmissæti. Í alþingiskosningunum 2003 voru kjósendur á kjörskrá fyrir hvert þingsæti ríflega tvöfalt fleiri í Suðvesturkjördæmi en í Norðvesturkjördæmi og því mun eitt kjördæmissæti flytjast þar á milli fyrir alþingiskosningarnar 2007.
[breyta] Kjördæmissæti og jöfnunarsæti
Tvennskonar þingsætum er úthlutað samkvæmt þessu kerfi eftir mismunandi reglum. Kjördæmissætum er úthlutað samkvæmt d'Hondt-reglunni í samræmi við niðurstöðu kosninga innan hvers kjördæmis. Jöfnunarsæti taka hinsvegar einnig mið af úrslitum á landsvísu og er ætlað að leiðrétta misræmi á milli fylgi flokks á landsvísu og fjölda kjördæmasæta. Einungis framboð með 5% atkvæða eða meira koma til greina við úthlutun jöfnunarsæta.
[breyta] Kjördæmi
Kjördæmin og þau sveitarfélög sem til þeirra teljast
- Norðvesturkjördæmi:
- Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, Dalabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð, Bæjarhreppur, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Höfðahreppur, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur.
- Norðausturkjördæmi:
- Fjallabyggð, Grímseyjarhreppur, Dalvíkurbyggð, Arnarneshreppur, Hörgárbyggð, Akureyrarkaupstaður, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Aðaldælahreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur, Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur, Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Borgarfjarðarhreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð, Breiðdalshreppur og Djúpavogshreppur.
- Suðurkjördæmi:
- Sveitarfélagið Hornafjörður, Skaftárhreppur, Mýrdalshreppur, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Ásahreppur, Vestmannaeyjabær, Flóahreppur, Sveitarfélagið Árborg, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Hrunamannahreppur, Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hveragerðisbær, Sveitarfélagið Ölfus, Grindavíkurkaupstaður, Sandgerðisbær, Garður, Reykjanesbær og Sveitarfélagið Vogar.
- Suðvesturkjördæmi:
- Reykjavíkurkjördæmi suður.
- Reykjavíkurkjördæmi norður.
[breyta] Tengill
- Lög um kosningar til Alþingis nr. 24 16. maí 2000
- Ákvörðun landskjörstjórnar um breytingi á kjördæmissætum eftir kosningarnar 2003.
- Útskýring á reglunum við úthlutun jöfunarsæta.
Kjördæmi Íslands |
---|
síðan 2003 |
Reykjavíkurkjördæmi norður | Reykjavíkurkjördæmi suður | Norðvesturkjördæmi | Norðausturkjördæmi | Suðurkjördæmi | Suðvesturkjördæmi |
1959-2003 |
Reykjavík | Reykjanes | Vesturland | Vestfirðir | Norðurland vestra | Norðurland eystra | Austurland | Suðurland |