Lewis Carroll
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Charles Lutwidge Dodgeson (fæddur 27. janúar 1832, dáinn 14. janúar 1889), betur þekktur undir höfundarnafninu Lewis Carroll, var breskur heimspekingur, rökfræðingur, stærðfræðingur, ljósmyndari, prestur og rithöfundur. Hann er þekktastur fyrir það að hafa skrifað bókina Lísa í Undralandi, og framhald þess Gegnum spegilinn, ásamt skopljóðinu Snarksveiðin og bullljóðið Jabberwocky.
Hann hafði dálæti af orðaleikjum, rökvillum og ævintýrum, og hæfni hans hefur heillað fólk á öllum aldri. Verk hans hafa verið vinsæl frá því að þau voru gefin út og hafa haft víðtæk áhrif á barnabækur. Margir 20. aldar rithöfundar hafa orðið fyrir verulegum áhrifum af verkum Lewis Carroll, til dæmis Jorge Luis Borges og James Joyce.
Félög hafa verið stofnuð víða um heim til þess að rannsaka og kynna verk Lewis Carrolls, svo sem í Englandi, Bandaríkjunum, Japan og Nýja Sjálandi.
Efnisyfirlit |
[breyta] Æviágrip
Charles Lutwidge Dodgson fæddist í Cheshire á England. Faðir hans, Charles Dodgson, var prestur í kirkjunni í Daresbury, litlu þorpi rúmlega 11.2 km frá Warrington. Fjölskylda hans var fyrst og fremst ensk, en þó átti hann einhverjar rætur að rekja til Írlands. Fjölskyldan var íhaldssöm og trúuð, og flestir forfeðra Dodgsons voru úr klassískum efri-miðstéttum kirkjunnar og hersins. Langafi hans, einnig Charles Dodgson að nafni, var biskup, og afi hans, enn einn Charles Dodgson, hafði verið kafteinn í hernum. Hann lést í bardaga árið 1803 og lét eftir sig tvo kornunga syni.
Eldri sonurinn, Charles, sniðgekk herinn og gerðist prestur. Hann stundaði nám við Westminster og síðar við Christ Church, Oxford. Hann hafði mikla stærðfræðihæfileika og útskrifaðist með gráður í guðfræði og stærðfræði. Hann hafði getað átt mjög litríkan feril sem vísindamaður, en þess í stað giftist hann frænku sinni árið 1827 og tók stöðu í einangraði kirkjusókn.
Charles Lutwidge Dodgson var þriðji af ellefu systkinum — sjö stelpur og fjórir strákar. Hann var elsti strákur fjölskyldunnar og öll hin systkini hans komust upp, sem þótti óvenjulegt á þeim tíma. Fjölskyldan var mjög náin.
Þegar Charles var 11 ára fékk faðir hans stöðu í Croft-on-Tees í norðurhluta Yorkshire, og öll fjölskyldan flutti í þessa stærri kirkjusókn þar sem þau bjuggu næstu 25 árin. Faðir hans fékk nokkrar stöðuhækkannir innan kirkjunnar: hann gaf út bók með predikunum sínum, þýddi Tertullian, varð erkidjákni Ripon dómkirkjunnar, og skipti sér að trúarlegu deilunum sem voru að sundra Ensku kirkjunni, stundum með áhrifamiklum hætti. Hann hallaðist að Ensk-Kaþólisisma og heillaðist að Tractarian hreyfingunni.
Charles var heimamenntaður framan af, og „leslistar“ hans sýna að hann hafi verið mjög snjall: Sjö ára gamall las hann The Pilgrim's Progress eftir John Bunyan. Oft er sagt að hann hafi verið örvhentur, en var neyddur til þess að nota hægri hendi og hlaut sálrænan skaða af; en þó eru engar heimildir til fyrir því. Hinsvegar þjáðist hann alla tíð af stama, sem varð honum hindrun í félagslegum samskiptum. Tólf ára gamall var hann sendur í einkaskóla nærri Richmond, þar sem að hann virðist hafa verið hamingjusamur, en árið 1845 var hann fluttur í skólann í Rugby, þar sem að hann var ekki jafn sáttur við sitt. Hann reit:
-
- Ég get ekki sagt ... að nokkrar jarðneskar ástæður gætu hvatt mig til þess að endurupplifa þessi þrjú ár ... ég get sagt með sanni að ef ég hafði verið ... öruggur frá áreiti á nóttunni, væri harðneskja daglegs lífs ef til vill viðráðanlegt smáræði. [1]
Eðli kvöldlæga áreitisins verður líklega aldrei þekkt með vissu, en það getur verið að hann hafi verið að tala um einhverskonar kynferðislega misnotkun. Burtséð frá þessu stundaði hann nám sitt af mikilli kostgæfni, en R.B. Mayor, stærðfræðikennarinn hans, sagði að hann hafði ekki séð lofsverðari pilt á sinni tíð í Rugby.
- ^ Ensk útgáfa: I cannot say ... that any earthly considerations would induce me to go through my three years again ... I can honestly say that if I could have been ... secure from annoyance at night, the hardships of the daily life would have been comparative trifles to bear.
[breyta] Ritverk
Lewis Carroll var afkastamikill rithöfundur og gaf út yfir fjörtíu ára skeið um 200 bæklinga um fjölmörg málefni, ásamt fjölda bóka um ýmis málefni, skálduð og raunveruleg. Þá ber helst að nefna:
- Lísa í Undralandi (e. Alice's Adventures in Wonderland)
- Through the Looking-Glass
- The Hunting of the Snark
- Jabberwocky
- Phantasmagoria (söguljóð)
- An Elementary Treatise on Determinants (sjá ákveða)
- Symbolic Logic (sjá stærðfræðileg rökfræði)
- Euclid and his Modern Rivals
- The Alphabet Cipher
- What the Tortoise Said to Achilles.
- Hiawatha's Photographing (ádeila á sönginn Hiawatha)
Að auki hélt hann dagbækur frá Janúar 1855 til Desember 1897, en dagbækur hans hafa verið gefnar út af The Lewis Carroll Society í níu bindum.
[breyta] Tenglar
- Opinberar vefsíður
-
- The Lewis Carroll Society.
- Lewis Carroll Society of North America.
- Looking for Lewis Carroll, vefsíða Association for New Lewis Carroll Studies.
- Ýtarefni
-
- LCSNA: Lewis Carroll Home Page
- Victorian Web: Lewis Carroll
- Lewis Carroll - inngangur að skáldskap hans.
- Tónverk sem hafa sótt innblástur sinn til Lewis Carroll
- 1982 hljóðviðtal við Edward Guilino, sem skrifaði ævisögu Lewis Carroll. Viðtal eftir Don Swaim frá CBS Radio - RealAudio
- The Internet Movie Database
-
- Snið:Imdb name
- IMDb persónuleit eftir Lewis Carroll
[breyta] Rafrænir textar
- Bækur á netinu
-
- Í Arno Schmidt Reference Library
- The Complete Works - helstu verk Lewis Carrolls (PDF)
- Alice's Adventures in Wonderland - Lísa í Undralandi (PDF, í lit)
- Frjálsir e-textar frá Project Gutenberg:
- Alice's Adventures in Wonderland
- Through the Looking-Glass
- The Hunting of the Snark
- Phantasmagoria and Other Poems
- Sylvie and Bruno
- The game of logic
- The Life and Letters of Lewis Carroll eftir Stuart Dodgson Collingwood
- Listi yfir verkum eftir Verk eftir Lewis Carroll hjá Project Gutenberg
- Önnur rit á netinu
- „The Manlet“
- Alice's Adventures Under Ground - allt handritið.
- Í Arno Schmidt Reference Library
- Hljóðskrár
-
- Wired for Books: Dramatísk hljóðuppfærsla af Alice's Adventures in Wonderland (RealAudio)
- Frí hljóðbók með The Hunting of the Snark frá LibriVox
- Frí hljóðbók með Alice's Adventures in Wonderland frá LibriVox