María Skotadrottning
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
María 1. Skotadrottning eða María Stúart (8. desember 1542 — 8. febrúar 1587) var drottning Skotlands frá 14. desember 1542 til 24. júlí 1567 þegar hún var neydd til að afsala völdum sínum í hendur eins árs gamals sonar síns, Jakobs. Hún var næst eftir Elísabetu í erfðaröðinni að ensku krúnunni og auk þess kaþólsk þannig að mótmælendur í Skotlandi og Englandi litu á hana sem ógnun. Hún ólst upp við frönsku hirðina og giftist árið 1558 Frans 2. Frakkakonungi. Þegar hann lést 1560 sneri hún aftur til Skotlands. 1565 giftist hún hinum enska Darnley lávarði og átti með honum soninn, Jakob, en hann efndi til samsæris gegn henni og var myrtur 1567. Gifting hennar og James Hepburn af Bothwell gerði það að verkum að skoski aðallinn snerist gegn henni og hún var neydd til að segja af sér. Þegar hún flúði til Englands lét Elísabet handtaka hana og halda henni í fangelsi næstu árin. Þegar vísbendingar komu fram um aðild hennar að samsæri gegn Elísabetu lét hún draga hana fyrir rétt þar sem hún var dæmd fyrir svik og tekin af lífi.
Fyrirrennari: Jakob 5. |
|
Eftirmaður: Jakob 6. |