Silvio Berlusconi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Silvio Berlusconi (fæddur 29. september 1936) er formaður stjórnmálaflokksins Forza Italia („Áfram Ítalía“) sem hann stofnaði þegar hann hóf stjórnmálaþátttöku fyrir þingkosningar á Ítalíu í mars 1994. Hann hefur tvisvar verið forsætisráðherra Ítalíu.
Kosningabandalag Berlusconis, Polo della Libertà, sigraði í kosningunum 1994 en hann var þó forsætisráðherra í aðeins sjö mánuði árið 1994 þar sem stjórn hans sagði af sér vegna yfirvofandi vantrausttillögu. Árið 2001 vann kosningabandalag það sem hann fór fyrir (Casa della Libertà) kosningarnar og hann varð aftur forsætisráðherra. Sú stjórn varð sú langlífasta í sögu ítalska lýðveldisins. 20. apríl 2005 sagði stjórnin af sér vegna taps í sveitarstjórnarkosningum og vandamála í stjórnarsamstarfinu, en 24. apríl myndaði Berlusconi nýja stjórn með litlum breytingum.
Í þingkosningum í apríl 2006 töpuðu hægriflokkarnir undir stjórn Berlusconis með aðeins 25.000 atkvæða mun fyrir Einingarbandalagi vinstri og miðflokka.
Áður en hann hóf stjórnmálaþátttöku var Berlusconi þekktur athafnamaður á sviði byggingariðnaðar og fjölmiðla. Hann er nú talinn ríkasti maður Ítalíu og 24. ríkasti maður heims, að mati tímaritsins Forbes.
Berlusconi hefur oft staðið frammi fyrir ásökunum um spillingu og hagsmunaárekstur sem eigandi langstærstu einkareknu fjölmiðlasamsteypu Ítalíu.
Fyrirrennari: Carlo Azeglio Ciampi |
|
Eftirmaður: Lamberto Dini |
|||
Fyrirrennari: Giuliano Amato |
|
Eftirmaður: Romano Prodi |