Stjörnuþoka
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stjörnuþoka er þyrping fjölmargra stjarna og annarra stjarnfræðilegra fyrirbæra, sem haldast í nágrenni hvert við annað vegna sameiginlegs þyngdarsviðs stjörnuþokunnar. Orðið nágrenni er auðvitað afstætt, og stjörnuþokur eru mjög stórar. Dæmigerðar stjörnuþokur geta verið frá þúsundum til hundraða þúsunda ljósára í þvermál og innihaldið allt frá því um tíu milljónum (107) stjarna, og upp í billjón (1012) stjörnur. Í flestum tilvikum er vegalengdin á milli stjörnuþoka talin í milljörðum ljósára, en þó eru til stjörnuþokur sem eru mun nær, og þess eru jafnvel dæmi að tvær stjörnuþokur „rekist saman“.
Jörðin okkar, ásamt sólinni og hinum plánetunum í sólkerfinu, er í stjörnuþoku sem nefnist Vetrarbrautin.