Viktoría Bretadrottning
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Viktoría Bretadrottning (Alexandra Viktoría) (24. maí 1814 – 22. janúar 1901) var drottning Bretlands (sameinaðs konungdæmis Englands, Skotlands og Írlands) frá 20. júní 1837 og keisaradrottning Indlands frá 1. janúar 1877. Hún ríkti í yfir sextíu ár, lengur en nokkur annar breskur þjóðhöfðingi og er sá tími í sögu Bretlands kenndur við hana og kallaður Viktoríutímabilið. Á þessu tímabili var Bretland áhrifamikið nýlenduveldi á blómaskeiði Iðnbyltingarinnar sem olli gríðarlegum félagslegum, tæknilegum og hagfræðilegum breytingum í Bretlandi. Viktoría var síðasti þjóðhöfðingi Bretlands af Hanover-ættinni, þar sem sonur hennar, Játvarður VII, taldist vera af ætt eiginmanns hennar, Alberts prins, Saxe-Coburg-Gotha-ættinni.
Fyrirrennari: Vilhjálmur IV |
|
Eftirmaður: Játvarður VII |
|||
Fyrirrennari: Bahadur Sjah II (síðasti Mógúlkeisarinn) |
|
Eftirmaður: Játvarður VII |