12. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jún – Júlí – Ágú | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 | ||||
2007 Allir dagar |
12. júlí er 193. dagur ársins (194. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 172 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1636 - Um 35 Íslendingar voru keyptir lausir úr Barbaríinu.
- 1690 - Orrustan við Boyne: mótmælendatrúar herir Vilhjálms II sigra kaþólska heri Jakobs II.
- 1906 - Dreyfus-málið: Alfred Dreyfus fékk uppreisn æru rúmlega áratug eftir að hafa verið dæmdur sekur fyrir landráð.
- 1932 - Norskir hermenn lögðu hluta Austur-Grænlands undir sig og kölluðu Eirik Raudes Land.
- 1962 - Hljómsveitin Rolling Stones steig á svið í fyrsta skiptið, á Marquee-klúbbnum í London.
- 1975 - Saó Tóme og Prinsípe fengu sjálfstæði frá Portúgal.
- 1979 - Kíribatí fékk sjálfstæði frá Bretlandi.
- 2006 - Ísraelskar hersveitir réðust inn í Líbanon í kjölfar þess að Hezbollah tók tvo ísraelska hermenn í gíslingu.
[breyta] Fædd
- 100 f.Kr. - Júlíus Sesar, rómverskur hershöfðingi og stjórnmálamaður (f. 44 f.Kr.).
- 1817 - Henry David Thoraeu, bandarískur rithöfundur og heimspekingur (d. 1862).
- 1895 - Buckminster Fuller, bandarískur arkitekt (d. 1983).
- 1904 - Pablo Neruda, síleanskt skáld og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1973).
- 1922 - Michael Ventris, enskur arkitekt (d. 1956).
- 1937 - Lionel Jospin, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands.
- 1942 - Páll Zóphoníasson, fyrrum bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
- 1967 - Rebekka A. Ingimundardóttir, leikkona og leikmyndahönnuður.
[breyta] Dáin
- 1536 - Erasmus frá Rotterdam, hollenskur heimspekingur (f. 1466).
- 1712 - Richard Cromwell, konungur Bretlands (f. 1626).
- 1926 - Gertrude Bell, breskur fornleifafræðingur og njósnari (f. 1868).
- 1935 - Alfred Dreyfus, franskur hermaður (f. 1859).
- 1994 - David Malcolm Lewis, enskur fornfræðingur (f. 1928).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |