30. júlí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jún – Júlí – Ágú | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 | 31 | ||||
2007 Allir dagar |
30. júlí er 211. dagur ársins (212. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 154 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 657 - Vítalíanus páfi tók við embætti.
- 1284 - Sturla Þórðarson sagnaritari lést. Hann var lögmaður um skeið og tók saman eina gerð Landnámu og einnig Íslendingasögu.
- 1797 - Geir Vídalín var vígður biskup Skálholtsbiskupsdæmis og fór vígslan fram á Hólum, en aðsetur biskups skyldi vera í Reykjavík.
- 1874 - Kristján 9. konungur Íslands og Danmerkur kom til Íslands til að vera viðstaddur þjóðhátíð í byrjun ágúst. Hann var fyrsti konungur Íslands sem kom til landsins.
- 1907 - Friðrik 8. konungur Íslands og Danmerkur kom til Íslands og ferðaðist um Suðurland auk þess að fara til Ísafjarðar, Akureyrar og Seyðisfjarðar.
- 1909 - Giftar konur fengu kosningarétt á Íslandi, svo og þær vinnukonur sem greiddu opinber gjöld.
- 1946 - Bifreið var ekið í fyrsta sinn úr Fljótum um Lágheiði og til Ólafsfjarðar og tók ferðin 6 klukkustundir.
- 1951 - Örn Clausen varð Norðurlandameistari í tugþraut, þá 22 ára gamall.
- 1961 - Brú var vígð yfir Hornafjarðarfljót og var hún þá næstlengsta brú landsins, 255 metrar.
- 1977 - Stálvík í Garðabæ hleypti af stokkunum fyrsta skuttogara, sem smíðaður var hérlendis, Stálvík, SI.
- 1988 - Vanúatú fékk sjálfstæði frá Bretlandi og Frakklandi.
- 1994 - Langferðabíll með 32 erlenda ferðamenn valt út af veginum fyrir ofan Bólstaðarhlíð í Húnavatnssýslu. Fjölmargir slösuðust og ellefu voru lagðir á sjúkrahús.
[breyta] Fædd
- 1863 - Henry Ford, bandarískur athafnamaður (d. 1947).
- 1898 - Werner Jaeger, þýskur fornfræðingur (d. 1961).
- 1943 - Giovanni Goria, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu (d. 1994).
- 1954 - Emil Gunnar Guðmundsson, íslenskur leikari.
- 1956 - Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
[breyta] Dáin
- 579 - Benedikt 1. páfi.
- 1284 - Sturla Þórðarson sagnaritari (f. um 1215)
- 1898 - Otto von Bismarck, kanslari Þýskalands (f. 1815).
- 1968 - Jón Leifs, tónskáld (f. 1899).
- 1988 - Ólafur Jóhann Sigurðsson, íslenskur rithöfundur (f. 1918).
- 1993 - Tryggvi Emilsson, íslenskur rithöfundur (f. 1902).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |