12. september
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- „12. september“ getur einnig átt við listamanninn 12. september.
Ágú – September – Okt | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | ||||||
2007 Allir dagar |
12. september er 255. dagur ársins (256. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 110 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1609 - Henry Hudson kom að ósum Hudsonfljóts.
- 1905 - Ráðhús Kaupmannahafnar var formlega vígt.
- 1909 - Sjúkrasamlag Reykjavíkur var stofnað að frumkvæði Oddfellowreglunnar.
- 1949 - Mesti mældur hiti á Íslandi í september varð 26°C á Dalatanga við Mjóafjörð.
- 1962 - David Ben-Gurion, forsætisráðherra Ísraels, kom í opinbera heimsókn til Íslands.
- 1965 - Orlofshúsin í Ölfusborgum voru tekin í notkun.
- 1970 - Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Kristnihald undir jökli, leikrit eftir Halldór Laxness. Aðalhlutverkið, Jón prímus, lék Gísli Halldórsson.
- 1980 - Herforingjastjórn rændi völdum í Tyrklandi.
- 1985 - Íslandsmet var sett í fallhlífarstökki er fallhlífarstökkvarar frá Akureyri stukku úr 21 þúsund feta hæð og voru í frjálsu falli í tvær mínútur áður en fallhlífarnar voru opnaðar.
- 2001 - Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins samþykktu einróma að grípa til 5. greinar stofnsáttmálans í kjölfar hryðjuverka í Bandaríkjunum, sem kveður á um að árás á eitt þeirra sé árás á þau öll.
[breyta] Fædd
- 1951 - Lalli Johns, íslenskur smáglæpamaður.
- 1957 - Hans Zimmer, þýskt kvikmyndatónskáld.
- 1975 - Þórunn Erna Clausen, íslensk leikkona.
[breyta] Dáin
- 1764 - Jean-Philippe Rameau, franskt tónskáld (f. 1683).
- 1948 - Héðinn Valdimarsson, íslenskur verkalýðsforingi (f. 1892).
- 1981 - Eugenio Montale, ítalskt skáld (f. 1896).
- 2003 - Johnny Cash, bandarískur kántrítónlistarmaður (f. 1932).
- 2005 - Bessi Bjarnason, íslenskur leikari (f. 1930).
- 2006 - Magnús Kjartansson, íslenskur myndlistarmaður (f. 1949).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |