21. september
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ágú – September – Okt | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | ||||||
2007 Allir dagar |
21. september er 264. dagur ársins (265. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 101 dagur er eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1919 - Reykjanesviti skemmdist allnokkuð í jarðskjálfta.
- 1936 - Franska herskipið L'Audacieux kom til Reykjavíkur og köfuðu menn á þess vegum niður að flaki Pourquoi-pas?, sem lá á níu metra dýpi við skerið Hnokka innst í Faxaflóa. Þetta herskip var á þessum tíma næsthraðskreiðasta skip heims og gekk á 44 hnúta hraða.
- 1937 - Skáldsagan Hobbitinn (The Hobbit) eftir J. R. R. Tolkien var fyrst gefin út í Bretlandi.
- 1963 - Eiríkur Kristófersson, fyrrverandi skipherra á skipum Landhelgisgæslunnar, var sæmdur æðstu orðu Breta, sem erlendir menn geta fengið, fyrir framgöngu sína við björgun breskra sjómanna.
- 1964 - Malta fékk sjálfstæði frá Bretlandi.
- 1985 - Í Þjóðleikhúsinu var flutt óperan Grímudansleikur eftir Verdi. Kristján Jóhannsson söng aðalhlutverkið og var í gagnrýni Morgunblaðsins sagður syngja stórkostlega.
- 1998 - Fyrsti friðardagurinn var haldinn(Peaceday).
[breyta] Fædd
- 1411 - Ríkharður hertogi af York (d. 1460).
- 1866 - H. G. Wells, breskur rithöfundur (d. 1946).
- 1902 - Luis Cernuda, spænskt ljóðskáld (d. 1963).
- 1902 - E. E. Evans-Pritchard, breskur mannfræðingur (d. 1973).
- 1909 - Kwame Nkrumah, ganískur stjórnmálamaður (d. 1972).
- 1929 - Bernard Williams, breskur heimspekingur (d. 2003).
- 1945 - Jerry Bruckheimer, bandarískur kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðandi.
- 1946 - Moritz Leuenberger, svissneskur stjórnmálamaður.
- 1947 - Stephen King, bandarískur rithöfundur.
- 1954 - Shinzō Abe, fyrrum forsætisráðherra Japans.
- 1956 - Jón Gunnarsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1965 - David Wenham, ástralskur leikari.
- 1972 - Liam Gallagher, breskur söngvari (Oasis).
- 1982 - Jón Arnór Stefánsson, íslenskur körfuknattleiksmaður.
- 1983 - Maggie Grace, bandarísk leikkona.
[breyta] Dáin
- 1576 - Girolamo Cardano, ítalskur eðlis- og stærðfræðingur (f. 1501).
- 1607 - Alessandro Allori, ítalskur listamaður (f. 1535).
- 1860 - Arthur Schopenhauer, þýskur heimspekingur (f. 1788).
- 1974 - Sigurður Nordal, rithöfundur og fræðimaður (f. 1886).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |