15. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
2007 Allir dagar |
15. júní er 166. dagur ársins (167. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 199 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1215 - Jóhann landlausi, Englandskonungur, neyddist til að setja innsigli sitt á réttindaskrá landeigenda, Magna Carta.
- 1219 - Valdimar sigursæli, Danakonungur, lagði Eistland undir sig.
- 1752 - Benjamin Franklin uppgötvaði að elding er rafmagn.
- 1829 - Kambsránsmenn voru dæmdir í hæstarétti og hlutu sex þeirra hýðingu (allt að 81 högg) en einn var dæmdur í ævilanga þrælkunarvinnu.
- 1926 - Almannafriður á helgidögum þjóðkirkjunnar var lögfestur.
- 1926 - Dönsku konungshjónin lögðu hornstein að byggingu Landspítala Íslands sem konur beittu sér fyrir í tilefni af kosningarétti sínum.
- 1952 - Byggðasafn var opnað í Glaumbæ í Skagafirði.
- 1981 - Bjartsýnisverðlaun Brøstes voru veitt í fyrsta sinn og hlaut þau Garðar Cortes óperusöngvari.
- 1985 - Á Bæ í Lóni var afhjúpaður minnisvarði um Úlfljót lögsögumann, sem tók saman fyrstu lög íslenska þjóðveldisins.
- 1987 - Fiskmarkaðurinn í Hafnarfirði hélt fyrsta uppboðið á ferskum fiski á Íslandi og þótti þetta merk nýjung.
[breyta] Fædd
- 1330 - Svarti prinsinn, Játvarður, sonur Játvarðs 3. Englandskonungs.
- 1594 - Nicolas Poussin, franskur listamaður (d. 1665).
- 1843 - Edvard Grieg, norskur tónsmiður (d. 1907).
- 1943 - Poul Nyrup Rasmussen, forsetisráðherra Danmerkur.
- 1947 - Pétur Gunnarsson, rithöfundur.
- 1964 - Courteney Cox, bandarísk leikkona.
- 1969 - Ice Cube, bandarískur söngvari og leikari.
- 1969 - Oliver Kahn, þýskur knattspyrnumaður.
- 1973 - Tore André Flo, norskur knattspyrnumaður.
[breyta] Dáin
- 1783 - Ludvig Harboe, biskup (f. 1709).
- 1996 - Ella Fitzgerald, bandarísk söngkona (f. 1917).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |