26. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
2007 Allir dagar |
26. júní er 177. dagur ársins (178. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 188 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1402 - Orrustan við Casalecchio: Hertoginn af Mílanó, Gian Galeazzo Visconti, sigraði her Bologna en dó skömmu síðar.
- 1581 - Norðurhéruð Niðurlanda lýstu yfir sjálfstæði frá Spáni.
- 1782 - Bannfæring var numin úr lögum á Íslandi.
- 1809 - Jörundur hundadagakonungur lét hengja upp auglýsingu þar sem á stóð meðal annars „Allur danskur myndugleiki er upphafinn á Íslandi“.
- 1823 - Kötlugos hófst með stórhlaupi úr Mýrdalsjökli, sem skemmdi jarðir bæði í Mýrdal og Álftaveri.
- 1900 - Eyfirðingar héldu aldamótasamkomu á Oddeyri og komu á þriðja þúsund manns.
- 1905 - Fyrsta loftskeyti erlendis frá barst til Íslands. Þetta var Marconi-skeyti frá Englandi og var tekið á móti því í loftskeytastöð við Rauðará í Reykjavík.
- 1921 - Kristján X, konungur Íslands og Danmerkur, kom í heimsókn til landsins.
- 1928 - Boranir hófust eftir heitu vatni í Laugardal í Reykjavík.
- 1930 - Alþingishátíðin var sett á Þingvöllum. Þangað komu um þrjátíu þúsund manns. Hátíðin stóð í þrjá daga.
- 1949 - Búð Þuríðar formanns var tekin í notkun á Stokkseyri í minningu Þuríðar. Hún hóf sjósókn 11 ára gömul og var formaður í áratugi.
- 1960 - Madagaskar fékk sjálfstæði frá Frakklandi.
- 1972 - Margot Fonteyn, breskur listdansari, kom til Íslands og hélt sýningu í Þjóðleikhúsinu og fékk mjög góða dóma.
- 1973 - Eldgosið í Heimaey í Vestmannaeyjum hætti að bæra á sér eftir rúma fimm mánuði.
- 1979 - Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga hóf starfsemi sína.
- 1992 - Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins framleiddi síðustu brennivínsflöskuna og afhenti hana Þjóðminjasafninu til varðveislu. Fyrsta flaskan var framleidd 1935 og er einnig varðveitt í safninu.
- 2004 - Ólafur Ragnar Grímsson var endurkjörinn forseti Íslands.
- 2005 - Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, endurvígði minnisvarða um landnám Íslendinga í Spanish Fork.
[breyta] Fædd
- 1824 - William Thomson, breskur stærð- og eðlisfræðingur (d. 1907).
- 1933 - Claudio Abbado, ítalskur hljómsveitarstjóri.
- 1944 - Svavar Gestsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1953 - Kristján L. Möller, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1956 - Chris Isaak, bandarískur tónlistarmaður.
[breyta] Dáin
- 1541 - Francisco Pizarro, spænskur landvinningamaður (f. 1478).
- 1948 - Pétur Magnússon, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1888).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |