1634
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1634 (MDCXXXIV í rómverskum tölum) var 34. ár 17. aldar sem hófst á sunnudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en miðvikudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Efnisyfirlit |
[breyta] Atburðir
- 25. febrúar - Hermenn myrtu Albrecht von Wallenstein að undirlagi keisarans vegna gruns um að hann væri að semja um frið við sænska herinn.
- 1. mars - Vladislás 4. konungur Póllands sigraði rússneskan her í orrustunni um Smolensk.
- 25. mars - Fyrstu ensku landnemarnir komu til Maryland, fjórðu varanlegu nýlendu Englendinga í Nýja heiminum.
- 5. og 6. september - Svíar biðu afgerandi ósigur fyrir keisarahernum í orrustunni við Nördlingen.
[breyta] Ódagsettir atburðir
- Veturinn 1633-1634 var kallaður Hvítivetur á Íslandi.
- Oxford University Press í Englandi fékk konungsleyfi.
[breyta] Fædd
- 16. janúar - Dorothe Engelbretsdotter, norskt skáld (d. 1713).
- 18. mars - Marie-Madeleine de La Fayette, franskur rithöfundur (d. 1693).
- 20. mars - Balthasar Bekker, hollenskur heimspekingur (d. 1698).
- 18. október - Luca Giordano, ítalskur listmálari (d. 1705).
- 15. desember - Thomas Kingo, danskt sálmaskáld (d. 1703).
[breyta] Dáin
- 25. febrúar - Albrecht von Wallenstein, tékkneskur hershöfðingi, myrtur (f. 1583).
- 15. maí - Hendrik Avercamp, hollenskur listmálari (f. 1585).
- 25. júní - John Marston, enskt leikskáld (f. 1576).