Albrecht Dürer
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Albrecht Dürer (21. maí 1471 – 6. apríl 1528) var þýskur listmálari, stærðfræðingur og gríðarlega afkastamikill myndskeri. Hann fæddist og dó í Nürnberg. Prentmyndir hans koma oft fyrir sem myndraðir. Hann lærði gullsmíði af föður sínum en reyndist svo drátthagur að hann var tekinn í læri hjá málaranum og prentmyndasmiðnum Michael Wolgemut fimmtán ára gamall. Eftir að námssamningi hans lauk gerðist hann förusveinn í eitt ár, líkt og tíðkaðist hjá þýskum iðnnemum, og ferðaðist um Þýskaland og til Sviss og Hollands. 1494 hélt hann í stutta ferð til Feneyja á Ítalíu þar sem verk meistara Endurreisnarinnar höfðu mikil áhrif á hann. Hann opnaði eigið verkstæði þegar hann sneri aftur til Nuremberg.