Elín Briem
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Elín Rannveig Briem (f. 19. október 1856 að Espihóli í Eyjafirði, d. 4. desember 1937) var skólastjóri eða forstöðukona kvennaskólans að Ytri-Ey í Austur-Húnavatnssýslu 1883-1895. Síðar stofnaði hún Hússtjórnarskóla Reykjavíkur.
Elín Briem hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu árið 1921, fyrst kvenna ásamt Þórunni Jónassen, fyrir störf sín í þágu menntunar íslenskra kvenna. Elín Briem ritaði bókina Kvennafræðarinn sem kom fyrst út um áramótin 1888-1889. Sú bók náði mikilli útbreiðslu og hafði veruleg áhrif á Íslandi.
[breyta] Heimild
- Ártöl og áfangar í sögu íslenskra kvenna, Kvennasögusafn Íslands, Reykjavík 1998