19. október
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sep – Október – Nóv | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | |||
2007 Allir dagar |
19. október er 292. dagur ársins (293. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 73 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 202 f.Kr. - Orrustan við Zama, síðasta orrustan í öðru púnverska stríðinu, fór fram.
- 1453 - Hundrað ára stríðinu lauk þegar Frakkar náðu aftur Bordeaux. Englendingar héldu einungis Calais eftir í Frakklandi.
- 1466 - Friðarsamningarnir í Thorn bundu enda á Þrettán ára stríðið. Gdansk, Pommern og allt Prússland voru innlimuð í Pólland, en Þýsku riddararnir fengu að ríkja yfir austurhlutanum undir Pólverjum.
- 1898 - Í Reykjavík var vígt timburhús fyrir Barnaskóla Reykjavíkur og var það síðar nefnt Miðbæjarskólinn. Það var byggt úr timbri vegna ótta manna við að steinhús kynni að hrynja í jarðskjálfta.
- 1918 - Þjóðaratkvæðagreiðsla um sambandslagasamninginn og var hann samþykktur með rúmlega 90% atkvæða. Kosningaþátttaka var tæplega 44%. Samningurinn gekk í gildi þann 1. desember.
- 1918 - Spænska veikin barst til Íslands og geisaði fram í desember. Um 4-500 manns dóu af völdum hennar.
- 1969 - Stytta af Ólafi Thors forsætisráðherra eftir Sigurjón Ólafsson var vígð framan við Ráðherrabústaðinn í Reykjavík.
- 1974 - Geirfinnur Einarsson hvarf í Keflavík sem markar upphaf Guðmundar- og Geirfinnsmálsins svonenfnda.
- 1994 - Nýtt skip, Guðbjörg, kom til Ísafjarðar. Var það fullkomnasta skip íslenska veiðiflotans og kostaði um hálfan annan milljarð króna.
- 2005 - Réttarhöldin yfir Saddam Hussein hófust.
- 2007 - Ný heildarþýðing Biblíunnar kom út, Biblía 21. aldar.
[breyta] Fædd
- 1433 - Marsilio Ficino, ítalskur heimspekingur (d. 1499).
- 1605 - Sir Thomas Browne, enskur vísindamaður og heimspekingur (d. 1682).
- 1856 - Elín Briem, stofnandi Hússtjórnarskóla Reykjavíkur (d. 1937).
- 1899 - Þorsteinn Víglundsson, skólameistari í Vestmannaeyjum (d. 1984).
- 1899 - Miguel Angel Asturias, gvatemalískur rithöfundur (d. 1974).
- 1931 - John le Carré, enskur rithöfundur.
- 1969 - Trey Parker, annar höfunda South Park-sjónvarpsþáttanna.
- 1971 - Sveinn Geirsson, íslenskur leikari.
[breyta] Dáin
- 1890 - Richard Francis Burton, breskur landkönnuður og rithöfundur (f. 1821).
- 1937 - Ernest Rutherford, nýsjálenskur kjarneðlisfræðingur (f. 1871).
- 1950 - Edna St. Vincent Millay, bandarískt ljóðskáld (f. 1892).
- 1987 - Jacqueline Du Pré, breskur sellóleikari (f. 1945).
- 1999 - Auður Auðuns, ráðherra (f. 1911).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |