Útvarp
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útvarp eða hljóðvarp er tæki eða tækni sem notast við útvarpsbylgjur til að miðla upplýsingum þráðlaust. Getur einnig átt við stofnun eða félag sem miðlar upplýsingum þannig, t.d. Ríkisútvarpið.
Í daglegri notkun er þó mun algengara að orðið útvarp sé notað um útvarpstæki, eða útvarpsmóttakara. Slíkt tæki getur tekið við hljóðvarpsútsendingum á ýmsum bylgjulengdum og kóðunartækni. Algengt er að útvarpstæki geti tekið við FM, AM, stuttbylgjuútsendingum og langbylgjuútsendingum Útvarpstækni er einnig notuð við sjónvarp.