Ríkisútvarpið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ríkisútvarpið (oft kallað RÚV) er íslensk ríkisstofnun, stofnuð 1930, sem sér um útsendingar á útvarpi og sjónvarpi.
Það sendir út eina sjónvarpsstöð sem heitir Sjónvarpið en er oft í daglegu tali kölluð Stöð 1 eða RÚV. Það rekur þrjár útvarpsstöðvar, Rás 1 sem einbeitir sér að dagskrárgerð í kring um talmál og tónlist, Rás 2 sem hefur það verksvið að fjalla um tónlist, dægurmál og fleira í þeim dúr og Rondó sem sendir stafrænt út á höfuðborgarsvæðinu og spilar klassíska tónlist og djass allan sólarhringinn. Einnig starfrækir RÚV fjórar deildir á landsbyggðinni sem sinna fréttaþjónustu á sínum svæðum og senda út staðbundna dagskrá á vissum tímum, deildirnar eru á Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Þar að auki rekur Ríkisútvarpið fréttavefinn ruv.is og textavarpið. Ríkisútvarpið er fjármagnað með auglýsingum og afnotagjöldum sem öllum eigendum sjónvarps- og útvarpstækja ber skylda til að greiða.
Efnisyfirlit |
[breyta] Útvarp
Ríkisútvarpið hóf útsendingar 20. desember 1930. Fyrstu ár útvarpsins var bara sent út á einni rás og í nokkra klukkutíma á kvöldi. Fyrsti útvarpstjórinn var Jónas Þorbergsson. Ríkisútvarpið þurfta að fara eftir ákveðnum útvarpreglum svo sem að rækta íslenska tungu og sögu íslands. Einnig þurftu þeir að vera með einhverskonar fréttir og láta í ljós mismunandi skoðanir fyrir fólk til umhugsunar. Það þurfti líka að huga að hafa skemmtiefni fyrir almenning og einnig eitthvað uppbyggilegt barnaefni fyrir krakka á öllum aldri. Árið 1982 hóf svo Rás 2 útsendingar sínar. Í fyrstu átti sú stöð að vera fyrir yngri kynslóðina t.d fyrir unglingana – þar voru t.d. spilaðir poppþættir og nútímalegra efni en á Rás 1 – en í dag er dagskráin mjög fjölbreytt. Eldra fólk hlustar mikið á Rás 1 en það er víðari hlustendahópur á Rás 2.
[breyta] Sjónvarp
Sjónvarpið hóf göngu sína þann 30. september árið 1966. Sjá grein um Sjónvarpið.
[breyta] Almennt
Sjónvarpið og útvarpið er nú í sama húsi eða frá árinu 2000 og það er við Efstaleiti 1. Ríkisútvarpið er eini fjölmiðillinn hér á landi sem leiðbeinir starfsmönnum um íslenskt mál og hefur markað sér stefnu í þeim málum.
Útvarpstjóri í dag (2007) er Páll Magnússon og hefur hann það hlutverk að annast rekstur og fjármál ríkisútvarpsins. Útvarpstjóri gegnir starfi sínu í 5 á í senn en þá skipar menntamálaráðherra nýjan.
Ætlunarverk ríkisútvarpsins samkvæmt vef þeirra er að vera í fararbroddi íslenskra fjölmiðla með því að bjóða landsmönnum fjölbreytta og vandaða dagskrá í samræmi við menningar- og lýðræðishlutverk sitt.
Með lögum sem sett voru 23. janúar 2007 var Ríkisútvarpinu breytt í opinbert hlutafélag. Mikil óánægja var um frumvarpið meðal stjórnarandstöðunnar sem að beitti málþófi til þess að tefja framgöngu þess en yfir 100 klukkustundir fóru í umræður. Frumvarpið var á endanum samþykkt með 29 atkvæðum gegn 21, 13 þingmenn voru fjarstaddir og tekur það gildi 1. apríl.
[breyta] Markmið
RÚV starfar eftir lögum. Meginmarkmið samkvæmt vef ríkisútvarpsins eru:
- Að vera vettvangur og hvati lýðræðislegrar umræðu
- Að endurspegla íslenska menningu og stuðla að varðveislu tungunnar
- Að upplýsa og fræða landsmenn um íslensk og erlend málefni
- Að vera vettvangur fyrir nýsköpun í dagskrárgerð
- Að efla dagskrárgerð utan höfuðborgarsvæðisins
- Að tryggja öfluga dreifingu dagskrárefnis
- Að varðveita dagskrárefni fyrir komandi kynslóðir
- Að standa vörð um öryggishlutverk sitt.