Dobermann
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dobermann | ||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Dobermann-hundar þykja býsna öflugir varðhundar. |
||||||||||
Önnur nöfn | ||||||||||
Dofri | ||||||||||
Tegund | ||||||||||
Vinnuhundur | ||||||||||
Uppruni | ||||||||||
Þýskaland | ||||||||||
Ræktunarmarkmið | ||||||||||
|
||||||||||
Notkun | ||||||||||
varðhundur | ||||||||||
Lífaldur | ||||||||||
11-13 ár | ||||||||||
Stærð | ||||||||||
Stór (63-72 cm) (32-45 kg) | ||||||||||
Tegundin hentar | ||||||||||
Reyndari eigendum | ||||||||||
Aðrar tegundir | ||||||||||
Listi yfir hundategundir |
Dobermann pinscher eða dobermann (stundum skrifað doberman), einnig nefndur dofri á íslensku, er afbrigði af hundi. Dobermann-hundar eru háfættir og vöðvastæltir hundar og eru algengir varðhundar og lögregluhundar.
Efnisyfirlit |
[breyta] Stærð
Dobermann rakki getur orðið 68-72 cm hár á herðakamb og vegið 40-45 kg. Tíkur verða aðeins minni eða 63-68 cm og um 32-35 kg.
[breyta] Saga
Það var Þjóðverjinn Friedrich Louis Dobermann sem á heiðurinn á þessum glæsilega hundi. Hann var einskonar hundaeftirlistmaður og hafði því aðgang að mörgum ólíkum tegundum. Hann dreymdi um hinn fullkomna varðhund, meðalstóran eða stóran hund sem átti að vera snögghærður, hugrakkur og þolgóður. Fyrst paraði hann saman þýskum pinscher og rottweiler. Einnig kom við sögu Machester terrier og bendir (pointer). Um 1880 varð svo dobermann-hundakynið til og árið 1900 var hann fyrst skráður í Breska hundaræktunarfélagið og 1912 var Dobermann klúbbur stofnaður í Bandaríkjunum.
Dobermann varð strax mjög vinsæll um allan heim sem varðhundur og lögregluhundur auk þess sem hann gegndi stóru hlutverki í seinni heimstyrjöldinni í björgun mannslífa. Hann er stór, sterkur, þolinn og er í hópi gáfuðustu hundategunda í heiminum.[1]
[breyta] Eiginleikar
Dobermann hefur mikla vinnugleði og þarfnast krefjandi verkefna, hann á samt sem áður auðvelt með að una sér í ró og næði fyrir framan sjónvarpið við hlið húsbónda sins.
Flestir sem heyra minnst á orðið dobermann sjá jafnan fyrir sér froðufellandi óargadýr, sem er ef til vill ekki skrýtið, vegna þess orðspors sem af honum fer og hlutverks sem hann hefur gegnt í gegnum tíðina. Þetta eru að mestu leyti ýkjur, þó vissulega sé hægt að gera úr honum ákafan varðhund.
Að eðlisfari er dobermann barnagæla, blíður, ástríkur í meira lagi og traustur hundur, sem hefur þó sterkt varðeðli og mun hann gæta húsbónda síns, fjölskyldu hans, bílinn, húsið og hin gæludýrin en það er ekki sjálfgefið að hann ráðist á og slasi alla óvelkomna eða ókunnuga, heldur hefur hann bara í hótunum nema að honum sé kennt annað.
Dobermann hefur gjarnan verið notaður til lögreglustarfa, hann er góður leitar-, blindrar- og björgunarhundur, einnig finnast dæmi sem þeir hafa verið þjálfaðir í veiði og jafnvel sem fjárhundar. Dobermann hefur einnig orðið mjög vinsæll sýningarhundur. Síðast en ekki síst þá er dobermann góður heimilishundur og traustur vinur.
Að eiga dobermann er þó mikil skuldbinding og ekki beinlínis ráðlagt að fá sér hann sem fyrsta hund, hann þarf mikinn aga og skýrar reglur. Dobermann elskar að vinna fyrir eiganda sinn og þarf að fá vinnu sem bæði reynir á líkamlegt og andlegt atgerfi. Því er sniðugt að fara með hann á hlýðni- og sporanámskeið þar sem hann fær útrás fyir vinnugleði sína með húsbónda sínum.
[breyta] Tilvísanir
- ↑ Jón Már Halldórsson, „Hefur gáfnafar hunda verið mælt? Ef já, hvaða hundategund kom best út?“ Vísindavefurinn 18.6.2002. (Skoðað 2.3.2007).
[breyta] Heimildir
- Dobermann HRFÍ. Allar upplýsingar um dobermann-hunda innan HRFÍá