Eðlisþyngd
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eðlisþyngd er mælikvarði á þéttleika hlutar eða efnis. Er þyngd hlutarins deilt með margfeldi rúmmáls og þyngdarhröðunar. SI-mælieining er kílógramm á rúmmetra (kg/m3). Er ekki efniseiginleiki eins og eðlismassi.
Getur einnig átt við hlutfallslega eðlisþyngd (enska Specific gravity), sem er hlutfall eðlisþyngda efnis og vatns og er því einingarlaus stærð, þ.a. hlutfallsleg eðlisþyngd vatns er „1“. Er oftast mæld með flotmæli í vökvum.