Flotmælir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Flotmælir eða flotvog er áhald notað til að mæla (hlutfallslega) eðlisþyngd vökva. Er oftast lokaður glerhólkur, þyngdur í annan endann, sem er með kvarða að innanverðu. Flotmælinum er komið á flot í vökvanum sem mæla skal eðlisþynd á og síðan er lesið af kvarðanum þar sem hann nemur við yfirborð vökvans. Algeng mælieining við ölgerð er öksle (skrifað Öchsle eða Oechsle), sem mælir hlutfallselga eðlisþyngd vatnslausna miðað við hreint vatn (eðlisþyngd 1,000). Mælieiningin öksle er skilgreind sem hlutfallsleg eðlisþyngd lausnarinnar mínus einn margfölduð með 1000 og er ekki SI-mælieining.