Espresso
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Espresso („expresso“ er íslenskur ritháttur, espresso ítalskur) er afar sterkur og bragðmikill kaffidrykkur. Hann er búinn til með því að þvinga heitt vatn í gegnum hárfínt lag af kaffibaunum. Á ítölsku þýðir espresso „þrýst út“ eða „þanið út“, þaðan er orðið komið.
Espresso er notað í grunninn fyrir marga aðra kaffidrykki, svo sem sviss mokka (mokka), cappuccino og latte. Eitt lykilatriða bragðins er froðan, kölluð kremma (crema), sem samanstendur af olíum, sykrum og próteinum.
Á Ítalíu er espresso oft drukkið eftir mat, sérstaklega á veitingahúsum. Varast ber að panta aðrar kaffitegundir eftir mat og þá sérstaklega cappucino vegna þess að það gæti móðgað veitingahúsastarfsfólk.