Fredrikstad
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fredrikstad er borg í Austfold-fylki í Noregi. Stendur hún við ósa stærstu ár Noregs, Glommu. Íbúar borgarinnar voru 70.791 1. janúar 2006 og eru nágrannasveitarfélögin Råde, Sarpsborg og Hvaler.
[breyta] Saga
Fredrikstad var stofnað árið 1567 og fékk nafn sitt árið 1569, þá í höfuðið á Friðriki II Danakonungi. Í raun var verið að endurreisa Sarpsborg, sem er 15 km ofar, eftir að Svíar höfðu brennt hana til grunna í stríði Dansk-norska ríkisins og Svíþjóðar.
Í Norðurlandaófriðnum mikla (1700 - 1721) var floti Dansk-norska ríkisins með heimahöfn í Fredrikstad.
[breyta] Atvinnulíf
Fredrikstad hefur alltaf verið mikil verslunarborg, vegna þess hve vel hún liggur til, ekki langt frá landamærum Svíþjóðar. Þar í borg voru stórar sögunarmyllur sem tóku við trjábolum sem flutu niður ánna.
[breyta] Þekkt fólk frá Fredrikstad
- Egil «Drillo» Olsen, knattspyrnuþjálfari
- Roald Amundsen, pólfari
- Jørn Andersen, knattspyrnumaður og -þjálfari
- Leah Isadora Behn, dóttir krónprinsessu Märtha Lois og Ari Behn
- Laura Cathrine Bjølstad, móðir Edvards Munch
- Hilde Hagerup, rithöfundur
- Klaus Hagerup, rithöfundur
25 stærstu borgir Noregs (með íbúafjölda 2005 skv. Hagstofu Noregs) |
---|
Ósló (811,700) | Björgvin (213,600) | Stafangur (173,100) | Þrándheimur (147,100) | Fredrikstad (97,100) | Drammen (90,700) | Skien (85,100) | Kristiansand (63,800) | Tromsø (52,400) | Tønsberg (45,000) | Álasund (44,100) | Haugesund (40,300) | Sandefjord (39,600) | Moss (34,500) | Bodø (34,100) | Arendal (30,900) | Hamar (28,800) | Larvik (23,100) | Halden (22,000) | Harstad (19,400) | Lillehammer (19,100) | Molde (18,600) | Mo i Rana (17,900) | Kongsberg (17,700) | Horten (17,700) |