Galías
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Galías var tvímastrað, breitt seglskip með hárri framsiglu og lægri aftursiglu og messansiglu (öfugt við skonnortu þar sem framsiglan er lægri en hinar). Framsegl voru þrjú, stagfokka, klýfir og jagar, en aftan á framsiglu og messansiglu voru gaffalsegl með gaffaltoppum. Galías tíðkuðst nokkuð í Íslandssiglingum á þilskipaöld.
Galías var upphaflega herskip sem tíðkaðist á miðöldum, að hálfu leyti róðrarskip og að hálfu leyti seglskip, búið allt að 50 fallbyssum (sbr. galeiða). En seinna voru samskonar skip, sem einnig voru nefnd galíasar, notaðir til síldarflutninga milli Íslands og annarra landa svo dæmi sé tekið.
Gerðir seglskipa | ||
![]() |
Kjölbátar: | Gaflkæna · Jakt · Julla · Kæna · Kútter · Slúppa · Tvíbytna |
![]() |
Rásigld skip: | Bússa · Djúnka · Langskip · Loggorta · Karavella · Karkari · Knörr · Kreari · Kuggur |
![]() |
Hásigld skip: | Barkantína · Barkskip · Briggskip · Brigantína · Galías · Góletta · Húkkorta · Korvetta · Skonnorta |
![]() |
Fullbúin skip: | Flauta · Freigáta · Galíon · Klippari · Línuskip |