Gamlárskvöld
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gamlársdagur er í vestrænni menningu síðasti dagur almanaksársins á Gregoríska tímatalinu. Á gamlárskvöldi er minnst hins liðna árs og litið fram til hins nýja. Ýmsar hefðir eru í kringum hátíðarhöld á þeim degi, en víðast hvar er stuðist við flugelda, kampavín eða freyðivín og litríkt skraut.
Efnisyfirlit |
[breyta] Áramótahefðir
Á mismunandi stöðum eru mismunandi hefðir sem fylgja áramótum.
[breyta] Áramót í Sydney
Í Sydney verður einn mesti samsöfnuður fólks á áramótunum, en hann er um 1.2 milljónir manna. Þá er skotið upp um 80.000 flugeldum og sést það úr allt að 16 kílómetra radíus frá Sydney. Atburðurinn lokkar til sín um 300.000 erlenda gesti árlega.
[breyta] Áramót á Íslandi
Hátíðarhöld á gamlárskvöldi á Íslandi eru fremur formföst hjá flestum fjölskyldum. Eftir hátíðarkvöldverð er áramótaskaupið Eftir hátíðarkvöldverð er áramótaskaupið sýnt í Sjónvarpinu um 22:00, og stendur það í um klukkustund. Að því loknu eru hátíðarræður útvarpsstjóra RÚV og svo forsætisráðherra. Um miðnætti hefjast flestir svo handa við það að sprengja gamla árið burt, með því að skjóta upp flugeldum í massavís. Flugeldaregn stendur langt fram eftir kvöldi, en ásamt flugeldunum eru oft skotnar upp sólir, þ.e. neyðarblys úr skipum sem þarf að endurnýja árlega. Eftir miðnætti hefjast svo áramótaböll, sem standa fram eftir morgni.
[breyta] Áramót í London
Fólk í London fjölmennar við Big Ben, og brjótast fagnaðarlætin út þegar að klukkan stóra vísar á miðnæti. Þá syngur hópurinn gjarnan Auld Lang Syne eftir að klukkan slær á miðnæti.
[breyta] Áramót í New York
Í New York fjölmennar fólk við Times torg, þar sem að sungið er og fagnað. Klukkan 23:59:00 byrjar stærðarinnar kúla úr Waterford kristal, sem vegur alls um 485.34 kg, að síga niður stöng á toppi byggingarinnar One Times Square, og staðnæmist hún á miðnæti við mikinn fögnuð nærstaddra. Þessum atburði er sjónvarpað um allan heim, og er fyrirmynd samskonar hefða víða um Bandaríkin.
[breyta] Tónlistarhefðir
Ýmis lög og ljóð tengjast nýju ári, en nýtt ár hefur verið viðfangsefni ýmissa skálda. Sálmurinn sálmsins Nú árið er liðið í aldanna skaut sem Séra Valdimar Briem orti 1886 er mjög kunnur á Íslandi, en í Englandi og Bandaríkjunum, og öðrum enskumælandi löndum er skoski söngurinn Auld lang syne gjarnan sunginn. Á íslensku þekkist þetta lag sem bræðralagssöngurinn, sem er þá tengdur við skátastarf frekar en nýársfögnuð.
[breyta] Áramót annarsstaðar
- Áramót í Japan
- Kínversku áramótin
- Rosh Hashanah - áramót gyðinga, 163 dögum eftir Pesach (sjá Hebreska tímatalið).
- Naw-Rúz - áramót Bahá'ía, þann 21. mars.
- Têt Nguyen Dan - áramót Víetnama.
- Poila Baisakh - áramót Bengala, haldin ýmist 14. apríl eða 15. apríl í Bangladesh og vestur Bengal.
- Enkutatash - áramót Eþíópíu eru haldin 11. september.
- Áramót Hindúa - tveimur dögum eftir Diwali hátíðina, um miðjan nóvember.
- Norouz - Áramót Írana, er haldin hátíðleg á augnabliki vorjafndægurs.
- Sunni - Áramót Múslima er haldin hátíðleg þann 1. Muharram. Þar sem að dagatal múslima byggir á 12 tunglmánuðum, um það bil 354 dagar, þá er dagsetning þess í Gregoríska tímatalinu ögn fyrr á hverju ári. Múslimar munu halda tvisvar upp á áramót af þessum sökum árið 2008.
[breyta] Heimildir
- Greinin „New Year's Eve“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 30. desember 2005.