Stöð 2
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stöð 2 er íslensk sjónvarpsstöð sem hefur verið starfandi frá því 9. október 1986. Stöðin var stofnuð að frumkvæði Jóns Óttars Ragnarssonar matvælafræðings og Hans Kristjáns Árnasonar hagfræðings. Valgerður Matthíasdóttir (Vala Matt) gekk svo til liðs við þá og var áberandi í útlitshönnun og dagskrárgerð stöðvarinnar frá upphafi. Stöð 2 er rekið af 365 miðlum.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga Stöðvar 2
[breyta] Nýju útvarpslögin 1986
Í stóra BSRB verkfallinu haustið 1984 lagðist nánast öll starfsemi RÚV niður og upp spruttu nokkrar ólöglegar útvarpsstöðvar. Í kjölfarið var farið að huga að endurskoðun útvarpslaga í menntamálaráðherratíð Ragnhildar Helgadóttur. Ný lög, sem leyfðu einkareknar útvarps- og sjónvarpsstöðvar, voru samþykkt á Alþingi 13. júní 1985 og tóku gildi í ársbyrjun 1986. Fram að þeim tíma höfðu verið starfandi á Íslandi tvær útvarpsstöðvar og ein sjónvarpsstöð, Rás 1 og Rás 2 og Ríkissjónvarpið.
[breyta] Stofnun Stöðvar 2
Stöð 2 fór í loftið 9. október þetta sama ár sem áskriftarstöð með ruglaðri dagskrá þar sem þurfti að kaupa lykilnúmer og slá inn í myndlykil til að afrugla útsendinguna. Jón Óttar var sjónvarpsstjóri og þau Vala Matt voru áberandi á skjánum þessa fyrstu daga stöðvarinnar. Dagskráin var byggð upp á aðkeyptu afþreyingarefni, leiknu íslensku skemmtiefni og fréttum. Erfiðlega gekk að fá fjárfesta til að taka þátt í starfseminni til að byrja með. Í byrjun árs 1987 voru áskrifendur um fimm þúsund, en voru orðnir tæplega þrjátíu þúsund fyrir árslok. Á sama tíma fjölgaði starfsfólki og stöðin fór í samkeppni við RÚV um dagskrárgerðarfólk og fréttamenn, sem þótti fáheyrt.
[breyta] Listi yfir þætti (Óklárað)
[breyta] Fréttatengt
- Kvöldfréttir, öll kvöld klukkan 18:30.
- Hádegisfréttir, alla daga klukkan 12:00.
- Ísland í bítið, eini morgunþátturinn í íslensku sjónvarpi. Frá kl. 6:58 til 9:00. Umsjónarmenn: Gunnlaugur Helgason, Heimir Karlsson og Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir (Ekki lengur á dagskrá, komið á Bylgjuna)
- Ísland í dag, Daglegur magasín þáttur sem tekur á fjölbreyttu efni eins og politík, menningu og afþreyingu. Einnig er fjallað um íþróttir, fréttir og veður.
- Silfur Egils, sunnudagsspjallþáttur um atburði liðinnar viku.
- Kompás, Vikulegur fréttaskýringaþáttur NFS, sunnudaga klukkan 19:15.
[breyta] Innlent
- Meistarinn, Spurningaþáttur. Umsjónarmaður: Logi Bergmann Eiðsson
- Stelpurnar, Gamanþáttur með stuttum hnitmiðuðum atriðum.
- Sjálfstætt fólk, fylgst með einum Íslendingi í nokkra daga. Umsjón: Jón Ársæll,sunnudaga klukkan 19:45.
- Búbbarnir, Fyrstu íslensku brúðuþættirnir. (ekki lengur á dagskrá)
- Strákarnir, fjölbreyttur gamanþáttur í umsjón Audda, Sveppa, Péturs Jóhanns, Gunna Samloku, Atla og Huga. (Ekki lengur á dagskrá)
- Einu sinni var, gömul mál rannsókuð. Umsjónarmaður: Eva María Jónsdóttir (Ekki lengur á dagskrá)
- Idol stjörnuleit, íslenska útgáfan af bandarísku þáttunum American Idol. Umsjónarmenn: Simmi og Jói, (Ekki lengur á dagskrá)
- X-factor, sönghæfileikakeppni. Kynnir er Halla Vilhjálms og dómarar eru Páll Óskar, Einar Bárðarson, Ellý í Q4You. , (Ekki lengur á dagskrá)
- Eldsnöggt með Jóa Fel, matreiðsluþáttur í umsjón Jóa Fel, (Ekki lengur á dagskrá)
[breyta] Erlent
- Cold Case,sunnudaga klukkan 20:25.
- 24, sunnudaga klukkan 21:10.
- NUMBER, sunnudaga klukkan 22:00.
- 60 minutes,sunnudaga klukkan 22:45.
- Grey's Anatomy, mánudaga klukkan 20:05.
- American Idol,mánudaga klukkan 20:55.
- Crossing Jordan, mánudaga klukkan 22:05.
- The Apprentice, þriðjudaga klukkan 20:05
- Prison Break, þriðjudaga klukkan 20:50
- Extreme Makeover, miðvikudaga klukkan 20:05.
- Nip/Tuck,miðvikudaga klukkan 20:50.
- Medium, miðvikudaga klukkan 21:45.
- The Oprah Winfrey Show, miðvikudaga, ekki ákveðinn tími.
- Studio 60, fimmtudaga klukkan 20:55.
- Standoff, fimmtudaga klukkan 21:40.
- Hotel Babylon, fimmtudaga klukkan 22:25.
- The Simpsons, föstudaga klukkan 19:40
- Beauty and the Geek, föstudaga, ekki ákveðinn tími.
- Punk'd, föstudaga, ekki ákveðinn tími.
- How I Met Your Mother, laugardaga klukkan 19:15.
- Joey, laugardaga klukkan 19:35.
- The Closer, laugardaga klukkan 20:25.
- Bold and the beautiful, alla virka morgna klukkan 09:00.
- Whose Line is it Anyway?, alla virka morgna klukkan 10:50.
- Neighbours, alla virka daga klukkan 12:45
- Sisters, alla virka daga.
- My sweet fat Valentina,stundum sýndur klukkan 13:10.
- Amazing Race, stundum sýndur
- Two and a Half Men, stundum sýndur
- My Life in Film, stundum sýndur
- Listen Up,stundum sýndur
- Beauty is not enough, stundum sýndur
- Entourage(ekki lengur á dagskrá)
- You Are What You Eat(ekki lengur á dagskrá)
- The George Lopez Show(ekki lengur á dagskrá)
- The Bernie Mac Show(ekki lengur á dagskrá)
- Dead Famous,(ekki lengur á dagskrá)
- Huff,(ekki lengur á dagskrá)
- Fear Factor(ekki lengur á dagskrá)
- Wife Swap(ekki lengur á dagskrá)
- Extreme Makeover: Home Edition(ekki lengur á dagskrá)
- Monk(ekki lengur á dagskrá)
- The Shield,(ekki lengur á dagskrá)
- Third Watch, (ekki lengur á dagskrá)
- Most Haunted,(ekki lengur á dagskrá)
- Missing, (ekki lengur á dagskrá)
- Strong Medicine, (ekki lengur á dagskrá)
- The 4400,(ekki lengur á dagskrá)
- Rome, (ekki lengur á dagskrá)
- NCIS,(ekki lengur á dagskrá)
- Kevin Hill,(ekki lengur á dagskrá)
- Mile High(ekki lengur á dagskrá)
- The Osbournes(ekki lengur á dagskrá)
[breyta] Barnatíminn
Barnatíminn er fastur liður Stöðvar 2. Alla virka daga hefst hann klukkan 16:00 og endar 17:30. Hann er líka sýndur um helgar frá 07:00 til 12:00. Á helgidögum er líka sýndur barnatími þegar börnin borða páskaeggin sín eða bíða eftir jólum. Einkennismerki barnatímans er hoppandi grænn fugl sem kynnir næsta þátt. Einnig sjást bregða fyrir kettir og fleiri dýr þegar þátturinn er kynnntur. Barnatími Stöðvar 2 sýnir bæði þætti fyrir þau yngstu og þau eldri börnin.
[breyta] Þættir Barnatímans
- Two of a kind
- Barney
- Tiny Toons
- Taz-mania
- Horance and Tina
- Witch
- Winx
- Sabrina
- Shoebox Zoo
- Shin Chan
- Teletubbies
- Pocoyo
- Dora the Explorer
- Noddy
- Beyblade
- Titeuf
- Justice League Unlimited
- Tom & Jerry kids
- Gordon the Garden Gnome
- Bratz
- A.T.O.M
- Yu-gi-oh