Lofsöngur
Wikipedia
Lofsöngur, "Ylistyslaulu" on Islannin kansallislaulu. Tekstin on laatinut Matthías Jochumsson, sävelmä on Sveinbjörn Sveinbjörnssonin. Yleensä tyydytään laulamaan ensimmäinen säkeistö.
I)
- Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!
- Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!
- Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
- þínir herskarar, tímanna safn.
- Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
- og þúsund ár dagur, ei meir:
- eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
- sem tilbiður guð sinn og deyr.
- Íslands þúsund ár,
- Íslands þúsund ár,
- eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
- sem tilbiður guð sinn og deyr.
("Oi isänmaamme Jumala, oi Jumala meidän maamme! Me ylistämmä pyhää, pyhää nimeäsi. Taivaan aurinkokunnista sinulle sitovat seppeleen sinun sotajoukkosi, aikojen kokous. Sinun edessäsi päivä on tuhat vuotta ja tuhat vuotta vain yksi päivä, yksi ikuisuuden pikku kukinto, joka kyynel väristen rukoilee Jumalaansa ja kuolee. Islannin tuhat vuotta, Islannin tuhat vuotta, yksi ikuisuuden pikku kukinto, joka kyynel väristen rukoilee Jumalaansa ja kuolee.")
II)
- Ó, guð, ó, guð! Vér föllum fram
- og fórnum þér brennandi, brennandi sál,
- guð faðir, vor drottinn frá kyni til kyns,
- og vér kvökum vort helgasta mál.
- Vér kvökum og þökkum í þúsund ár,
- því þú ert vort einasta skjól.
- Vér kvökum og þökkum með titrandi tár,
- því þú tilbjóst vort forlagahjól.
- Íslands þúsund ár
- Íslands þúsund ár
- voru morgunsins húmköldu, hrynjandi tár,
- sem hitna við skínandi sól.
III)
- Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð!
- Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá.
- Vér deyjum, ef þú ert ei ljós það og líf,
- sem að lyftir oss duftinu frá.
- Ó, vert þú hvern morgun vort ljúfasta líf,
- vor leiðtogi í daganna þraut
- og á kvöldin vor himneska hvíld og vor hlíf
- og vor hertogi á þjóðlífsins braut.
- Íslands þúsund ár
- Íslands þúsund ár
- verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár,
- sem þroskast á guðsríkis braut.