Ásgeir Ásgeirsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ásgeir Ásgeirsson var 2. forseti lýðveldisins Íslands. Hann fæddist í Kóranesi á Mýrum 13. maí 1894 og dó 15. september 1972. Foreldrar hans voru Ásgeir Eyþórsson, verslunarmaður og Jensína Björg Matthíasdóttir. Ásgeir var guðfræðingur að mennt, hann lauk prófi frá Háskóla Íslands 21 árs gamall og stundaði framhaldsnám í Kaupmannahöfn í eitt ár að því loknu. Ásgeir var biskupsritari Þórhalls Bjarnasonar biskups og síðar kennari við Kennaraskólann og fræðslustjóri í mörg ár. Hann var þingmaður Vestur-Ísafjarðarsýslu 1923 - 1952, forseti sameinaðs þings á Alþingishátíðinni 1930, gegndi embætti fjármálaráðherra 1931 - 1932 og var forsætis- og fjármálaráðherra 1932—1934. Hann var bankastjóri Útvegsbanka Íslands 1938 - 1952 er hann var kjörinn forseti.
Ásgeir var fyrsti forseti þjóðarinnar sem var kosinn til þess embættis í almennum kosningum. Hann sat í embætti árin 1952 – 1968 eða í fjögur kjörtímabil. Hann fékk aldrei mótframboð og var því ávallt sjálfkjörinn í embætti frá og með 1956. Kona hans var Dóra Þórhallsdóttir, dóttir Þórhalls Bjarnasonar biskups.
Fyrirrennari: Sveinn Björnsson |
|
Eftirmaður: Kristján Eldjárn |
|||
Fyrirrennari: Tryggvi Þórhallsson |
|
Eftirmaður: Hermann Jónasson |