Broddmjólk
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Broddmjólk eða broddur (latína: colostrum) er sú mjólk sem framleidd er í mjólkurkirtlum spendýra seint á meðgöngu og nokkrum dögum fyrir fæðingu. Broddmjólkin inniheldur mörg lífsnauðsynleg efni sem gefa afkvæminu gott „start“ og hjálpa því að þroskast og verjast sjúkdómum. Úr broddmjólk kúa eru búnir til ábrystir.