Eyra
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eyra heyrir til skynfæra. Í daglegu máli vísar eyra til ytri hluta eyrans, útvöxturinn frá höfði, úteyra. En í fræðilegu tilliti er eyra meira, það er líka það sem við ekki sjáum, innra eyrað.
Eyra er skipt í þrjá hluta:
- Úteyra, sýnilegi hlutinn - tengist miðeyra með hlustinni.
- Miðeyra, geymir þrjú lítil heyrnarbein, hamar, steðja og ístað, sem magna hljóðbylgjurnar.
- Inneyra, geymir viðtaka fyrir hljóðbylgjur og jafnvægisskyn, kuðung og bogagöng.