Fallöxi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fallöxi var aftökutæki sem er helst þekkt úr frönsku byltingunni sem hófst 1789. Fallöxin er þung öxi sem vinnur verk sitt með eigin fallþunga.
Fallöxin er í flestum tungumálum kennd við meðmælanda hennar, Joseph-Ignace Guillotin, og nefnd Guillotine. Fallöxin var aðallega notuð í Frakklandi, og var helsta aftökuaðferðin í frönsku byltingunni. Síðasta opinbera aftakan með fallöxi fór fram 17. júní 1939 fyrir utan fangelsið Saint-Pierre rue Georges Clemenceau 5 að Versölum. Þá var Eugene Weidman tekinn af lífi eftir að hafa verið sakfelldur fyrir sex morð. Síðasta aftaka með fallöxi fór fram 10. september, 1977, þegar Hamida Djandoubi, túnískur innflytjandi sem hafði pyntað og drepið fyrrverandi kærustu sína, var tekinn af lífi í Aix-en-Provence. Bann við dauðarefsingu í Frakklandi gekk í gildi 1981.