Hljóðhraði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hljóðhraði er hraði hljóðbylgja og er mjög háður því efni, sem hljóðið berst um og ástandi efnisins, t.d. hita. Hljóðhraði er venjulega táknaður með c, en þó er táknið v einnig notað og telst jafngilt. Hljóðhraði í gasi er mjög háður hita og gasþéttleika.
Oft þegar talað er um hljóðhraða er verið að tala um hraða hljóðs í lofti, en hann er um 344 m/s (1238 km/klst) við 21° hita. Þotur eða önnur farartæki sem fara meða hraða, sem er meiri en hljóðhraði, eru sagðar hljóðfráar.
Ljóshraði er mesti hugsanlegi hraðinn, en hann er tæplega milljón sinnum meiri en hljóðhraði í lofti.
[breyta] Um hljóðhraða
Hljóðhraða c í föstu efni eða vökva má reikna með eftirfarandi jöfnu:
þar sem C er efnisstuðull og ρ er eðlismassi. Almennt gildir að
þar sem p er þrýstingur. Fyrir kjörgas gildir að
þar sem R er gasfasti, κ er hlutfall varamrýmda gassins og T hiti.