Nítján hundruð áttatíu og fjögur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
1984 eða Nítján hundruð áttatíu og fjögur (Nineteen Eighty-Four á frummálinu) er skáldsaga eftir George Orwell sem gerist árið 1984. Hún gerist í dystópítískri framtíð þar sem ríkið ræður öllu, jafnvel hugsunum þegna sinna. Hún er oft talin ein áhrifamesta bók 20. aldar og hún er í flokki með Veröld ný og góð eftir Aldous Huxley og Við eftir Jevgeníj Zamjatín sem ein þekktasta dystópíska skáldsaga sögunnar.
Bókin kom út í íslenskri þýðingu Hersteins Pálssonar, Thorolf Smith og Gunnars Dal árið 1951 undir heitinu Nítján hundruð áttatíu og fjögur: skáldsaga.