Skógarfura
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() Ástand stofns: Í lítilli hættu
|
|||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Skosk skógarfura
|
|||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | |||||||||||||||
|
|||||||||||||||
|
|||||||||||||||
Pinus sylvestris L. |
|||||||||||||||
![]() Útbreiðsla í Evrópu og Asíu
|
|||||||||||||||
|
Skógarfura (fræðiheiti: Pinus sylvestris) er barrtré af þallarætt. Tegundin er útbreidd um stóran hluta Norður-Evrópu og Síberíu austur til Mongólíu.
Skógarfura er eina upprunalega barrtré Norður-Evrópu og myndaði mikla skóga í álfunni á öldum áður. Tegundin varð hins vegar útdauð mjög víða vegna skógeyðingar af manna völdum. Skógarfuran er einkennistré Skotlands vegna þess hve ráðandi hún var í hinu upprunalega skoska skóglendi sem síðar eyddist að mestu og þekur í dag aðeins 1% landsins.
[breyta] Skógarfura á Íslandi
Skógarfuran náði nokkurri útbreiðslu á Íslandi vegna skógræktar. Hins vegar minnkaði notkun hennar í skógrækt hérlendis upp úr 1960 vegna lúsafaraldrar sem herjaði einkum á hana.