7. maí
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Apr – Maí – Jún | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 | ||
2007 Allir dagar |
7. maí er 127. dagur ársins (128. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 238 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1197 - Sex menn létust í Lönguhlíðarbrennu eða Önundarbrennu. Bærinn Langahlíð stóð þar sem nú er Skriða í Hörgárdal.
- 1429 - Síðasta umsátursvirki Englendinga við Orléans, Tourelles, féll. Jóhanna af Örk varð hetja fyrir að leiða lokaáhlaupið þrátt fyrir að vera særð.
- 1682 - Pétur mikli varð Rússakeisari ásamt hálfbróður sínum Ívan.
- 1810 - Sir George Stuart Mackenzie og Henry Holland læknir komu til Íslands og skrifuðu báðir merkar bækur um ferð sína.
- 1812 - Óveður geisaði á Vestfjörðum og fórust 54 menn á sjö skipum frá Önundarfirði.
- 1934 - Borðeyrardeilan hófst um samningsrétt félaga í verkalýðsfélagi í Hrútafirði.
- 1946 - Japanska raftækjafyrirtækið Sony var stofnað.
- 1951 - Bandaríkin sendu herlið til Íslands til að sjá um varnir þess, en samningur þess efnis var undirritaður tveimur dögum fyrr.
- 1957 - Helen Keller kom í heimsókn til Íslands til að styðja og hvetja blinda og mállausa. Hún var sjálf bæði blind og mállaus og varð fræg fyrir réttindabaráttu sína.
- 1978 - Jarðgöng undir Oddsskarð á milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar voru vígð. Göngin eru í um 630 metra hæð og eru um 630 metra löng.
- 2007 - Gröf Heródesar konungs fannst í hæðinni Herodium og hafði hennar verið leitað þar í yfir 30 ár.
[breyta] Fædd
- 1833 - Johannes Brahms, þýskt tónskáld og píanóleikari (d. 1897).
- 1840 - Pjotr Tsjækovskí, rússneskt tónskáld (d. 1893).
- 1901 - Gary Cooper, bandarískur leikari (d. 1961).
- 1919 - Eva Perón, argentínsk forsetafrú (d. 1952).
- 1927 - Ruth Prawer Jhabvala, þýskur rithöfundur.
- 1943 - Peter Carey, ástralskur rithöfundur.
- 1975 - Árni Gautur Arason, íslenskur knattspyrnumaður.
[breyta] Dáin
- 399 f.Kr. - Sókrates, grískur heimspekingur (f. um 469 f.Kr.).
- 1840 - Caspar David Friedrich, þýskur listmálari (f. 1774).
- 1961 - Þorkell Þorkelsson, íslenskur eðlisfræðingur (f. 1876).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |