Suðurskautslandið
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Suðurskautslandið (einnig kallað Suðurheimskautslandið eða Antarktíka) er syðsta heimsálfa jarðarinnar og er Suðurpóllinn á henni. Það er staðsett á suðurhveli jarðar, að miklu leiti fyrir sunnan Suður-heimskautsbaugur, og er umlukið Suður-Íshafinu. Suðurskautslandið er u.þ.b. 14 milljón ferkílómetrar og er því fimmta stærsta heimsálfan að flatarmáli á eftir Asíu, Afríku, Norður Ameríku og Suður Ameríku. 98% ef flatarmáli Suðurskautslandsins er þakið jökulís, sem er að meðaltali 1,6 kílómetra þykkur.
Að meðaltali er Suðurskautslandið kaldasta, þurrasta og vindasamasta heimsálfan og hefur hæstu hæð að meðaltali yfir sjávarmáli af öllum heimsálfum [1]. Fyrst að það er lítil úrkoma nema við strendurnar, þá eru innviði álfunnar tæknilega séð stærsta eyðimörk í heimi. Á Suðurskautslandinu eiga engir menn varanleg heimili og þar eru engin ummerki um núverandi eða forsögulegar byggðir innfæddra manna. Aðeins plöntur og dýr sem þola kulda vel lifa að þar, t.d. mörgæsir, nokkrar tegundir hreifadýra , mosar, fléttur, og margar tegundir af þörungum.
Þrátt fyrir að goðsagnir og getgátur um Terra Australis (“Landið í suðri”) megi rekja aftur í fyrndina, er það almennt viðurkennt að Suðurskautslandið hafi fyrst sést í rússneskum leiðangri árið 1820 með Mikhail Lazarev og Fabian Gottlieb von Bellingshausen í fararbroddi. Hinsvegar var heimsálfunni gefinn lítill gaumur fram á 20. öldina vegna fjandsamlegs veðurfars, skorts á auðlindum, og einangrunar.
[breyta] Tenglar
- L.L. Ivanov et al, Topographic map of Livingston Island and Greenwich Island
- Antarctic Place-names Commission of Bulgaria
Heimsálfurnar |
---|
Asía | Afríka | Norður-Ameríka | Suður-Ameríka | Suðurskautslandið | Evrópa | Eyjaálfa (Ástralía) |
Afríka: | Afríka sunnan Sahara | Austur-Afríka | Gínea | Horn Afríku | Kongó | Magreb / Norðvestur-Afríka | Mið-Afríka | Norður-Afríka | Sahel | Stóru vötnin | Sunnanverð Afríka | Súdan | Vestur-Afríka | |
Ameríka: | Andesfjöll | Gvæjanahálendið | Karíbahaf | Mið-Ameríka | Slétturnar miklu | Suður-Ameríka | Suðurkeilan | Vötnin miklu | |
Asía: | Austur-Asía | Austur-Indíur | Austurlönd fjær | Indlandsskagi | Mið-Asía | Norður-Asía | Suðaustur-Asía | Suður-Asía | Suðvestur-Asía (Mið-Austurlönd, Austurlönd nær, Anatólía, Arabíuskaginn) | |
Evrópa: | Austur-Evrópa | Balkanskaginn | Benelúxlöndin | Bretlandseyjar | Eystrasalt | Mið-Evrópa | Norður-Evrópa | Norðurlöndin | Suður-Evrópa | Vestur-Evrópa | |
Eyjaálfa: | Aleuteyjar | Ástralasía | Kyrrahafsjaðar | Melanesía | Míkrónesía | Pólýnesía | |
Aðrir: | Evrasía: Fyrrum Sovétlýðveldi | Kákasus Heimskautin: Norðurheimskautið | Norðurslóðir | Suðurskautslandið |