Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vinstrihreyfingin – grænt framboð er vinstrisinnaður stjórnmálaflokkur á Íslandi sem varð til þann 6. febrúar 1999 þegar nokkrir þingmenn úr Alþýðubandalaginu vildu ekki ganga í Samfylkinguna við stofnun hennar. Auk hefðbundinnar félagshyggju og jafnaðarstefnu (sósíalisma) á hann margt sameiginlegt með græningjaflokkum Evrópu í stefnu sinni. Flokkurinn bauð fyrst fram í kosningum til Alþingis árið 1999 og fékk þá 6 menn kjörna en í kosningunum 2003 tapaði hann einum manni og hafði þá 5. Í alþingiskosningunum árið 2007 jókst fylgi flokksins verulega og hefur hann nú 9 þingmenn. Stofnanir innan flokksins eru Ung vinstri græn og Eldri vinstri græn. Félagar í VG eru nú um þrjú þúsund talsins og er flokkurinn meðlimur Norræna Vinstri-Græna Bandalagsins.
Efnisyfirlit |
[breyta] Stjórn
Íslensk stjórnmál Þessi grein er hluti af greinaflokknum: Íslensk stjórnmál |
- Formaður: Steingrímur J. Sigfússon
- Varaformaður: Katrín Jakobsdóttir
- Ritari: Sóley Tómasdóttir
- Gjaldkeri: Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir
- Árni Þór Sigurðsson
- Bjarkey Gunnarsdóttir
- Gestur Svavarsson
- Hlynur Hallsson
- Lilja Rafney Magnúsdóttir
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Svandís Svavarsdóttir
- Framkvæmdastýra: Drífa Snædal
[breyta] Varastjórn
- Auður Lilja Erlingsdóttir
- Guðmundur Ingi Guðbrandsson
- Guðmundur Magnússon
- Ólafía Jakobsdóttir
[breyta] Tengd félög
- Formaður Ungra vinstri grænna: Auður Lilja Erlingsdóttir
- Formaður Eldri vinstri grænna: Margrét Margeirsdóttir
[breyta] UVG
Unga fólkið í Vinstrihreyfingin – grænt framboð stofnaði með sér formlegan samstarfsvettvang haustið 2001. Tilgangur UVG er að tryggja ungu fólki í VG vettvang til málefnaumræðu og mynda inngönguleið fyrir nýja félaga.
[breyta] EVG
Á haustdögum 2005 var ákveðið í samráði við Steingrím J. Sigfússon, að gera tilraun til að mynda hóp eldri borgara sem væru félagar eða stuðningsmenn Vinstri Grænna. Formaður félagsins er Margrét Margeirsdóttir.
[breyta] Landsfundir
Landsfundur er æðsta vald flokksins en hann er haldinn á tveggja ára fresti. Á landsfundi er kosið í stjórn flokksins og í flokksráð. Í stjórn flokksins sitja 11 aðalmenn auk fjögurra varamanna og fer þessi hópur með daglega stjórn flokksins í samræmi við lög og samþykktir. Stjórnin hittist mánaðarlega. Flokksráð er æðsta vald milli landsfunda en það mynda aðal- og varamenn í flokksstjórn, þingmenn og varaþingmenn og sveitastjórnarfulltrúar flokksins, formenn kjördæmisráða, formenn svæðisfélaga, formaður ungliðahreyfingar flokksins og 30 fulltrúar sem kosnir eru sérstaklega af landsfundi. Varaformaður flokksstjórnar er jafnframt formaður flokksráðs.
[breyta] Þingflokkur
Þingflokkur Vinstrihreyfingar - græns framboðs síðan eftir kosnigar 12. maí 2007
Þingmaður | Titill | Síðan | Kjördæmi |
---|---|---|---|
Steingrímur J. Sigfússon | Formaður | 23. apríl 1983 | 1. Sæti Norðausturkjördæmi |
Katrín Jakobsdóttir | Varaformaður | 12. maí 2007 | 1. Sæti Reykjavík Norður |
Ögmundur Jónasson | Formaður þingflokks | 8. apríl 1995 | 1. Sæti Suðvesturkjördæmi |
Kolbrún Halldórsdóttir | Alþingismaður | 8. maí 1999 | 1. Sæti Reykjavík Suður |
Jón Bjarnason | Alþingismaður | 8. maí 1999 | 1. Sæti Norðvesturkjördæmi |
Álfheiður Ingadóttir | Alþingismaður | 12. maí 2007 | 2. Sæti Reykjavík Suður |
Árni Þór Sigurðsson | Alþingismaður | 12. maí 2007 | 2. Sæti Reykjavík Norður |
Atli Gíslason | Alþingismaður | 12. maí 2007 | 2. Sæti Reykjavík Suður |
Þuríður Backman | Alþingismaður | 8. maí 1999 | 2. Sæti Norðausturkjördæmi |
[breyta] Kjörfylgi
Alþingiskosningar | ||
---|---|---|
Kosningar | Atkvæða | Þingsæti |
1999 | 9,1% | 6 |
2003 | 8,8% | 5 |
2007 | 14,35% | 9 |
Sveitarstjórnarkosningar | ||
---|---|---|
Kosningar | Atkvæða | Fulltrúar |
2002 | 6,7% | 3 |
2006 | 12,8% | 14 |