Asóreyjar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Asóreyjar (portúgalska: Açores) er níu eyja eyjaklasi í miðju Atlantshafinu sem tilheyrir Portúgal. Hann er staðsettur um 1.500 kílómetra frá Lissabon og um 3.900 kílómetra frá Norður-Ameríku.
Eyjarnar nýju eru á yfir 600 km svæði, esm gerir yfirráðasvæði þeirra yfir 1.1 milljón km². Fyrir utan eyjuna Santa Maria er eldvirkni á öllum eyjunum. Fjallið Pico á Picoeyju gerir það að hæsta fjalli Evrópu. Reyndar eru eyjarnar sjálfar toppar hæstu fjalla heims, ef mælt er frá hafsbotni.
Eyjarnar teljast til Portúgal en njóta sjálfsstjórnar.
Þrátt fyrir að margir telji eyjarnar vera nefndar eftir gáshauk (Açor á portúgölsku) hefur fuglinn aldrei átt heima á eyjunum. Sumir telja nafnið eldri mynd af orðinu azures (fleirtalan af orðinu blár) vegna þess að eyjurnar virðast bláar þegar þær eru séðar úr fjarska.
Azoreyjurnar voru uppgötvaðar árið 1427 og tólf árum síðar hófst landnám þar. Í fyrstu var aðallega um að ræða fólk frá Algarve og Alentejo en síðar fólk utan Portúgals.
Eyjarnar hlutu sjálfsstjórn árið 1976 (Região Autónoma dos Açores).
Frá sjálfstjórn eyjanna hefur framkvæmdarvaldið verið í Ponta Delgada, löggjafarvaldið í Horta og dómsvaldið í Angra do Heroísmo. Núverandi forseti sjálfsstjórnarsvæðanna er Carlos Cesar.
Þann 31. desember 2002 voru íbúar eyjanna 238.767 sem gera 106 manns per km².
[breyta] Fólksfjöldi
Fjólksfjöldi Azoreyjanna | |||
---|---|---|---|
Eyja | Fólksfjöldi (2002) |
Helsta Borg/Bær |
Sveitarfélög |
São Miguel | 130,154 | Ponta Delgada | 6 |
Terceira | 54,996 | Angra do Heroísmo | 2 |
Faial | 14,934 | Horta | 1 |
Pico | 14,579 | Madalena | 3 |
São Jorge | 9,522 | Velas | 2 |
Santa Maria | 5,490 | Vila do Porto | 1 |
Graciosa | 4,708 | Santa Cruz da Graciosa | 1 |
Flores | 3,949 | Santa Cruz das Flores | 2 |
Corvo | 435 | Vila do Corvo | 1 |