Dnjepr
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hnit: 46°30′ N 32°18′ A
Dnjepr er fljót í Rússlandi, Hvíta-Rússlandi og Úkraínu, ein af lengstu ám Evrópu, um 2285 kílómetrar á lengd. Fljótið kemur upp vestan við Moskvu og rennur vestur og suður og tæmist í Svartahaf um 120 kílómetra austan við hafnarborgina Odessa. Áin er geysilega mikið virkjuð, í henni eru yfir 300 raforkuver og margar miklar stíflur. Áin er skipgeng að mestu í tíu mánuði á ári, en hún frýs í tvo mánuði á veturna. Hún er mikilvæg samgönguæð í austanverðri Evrópu. Við hana standa til dæmis borgirnar Kív og Dnjepropetrovsk í Úkraínu.