Hæka
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hæka (japanska: 俳句) er japanskur bragarháttur sem þróaðist út frá rengu sem er bragur þar sem tveir eða fleiri kveðast á. Hæka hefur þrjár braglínur með fimm atkvæðatáknum í fyrstu línu, sjö í næstu og fimm í þeirri þriðju. Efni rétt ortrar hæku á að tengjast náttúrunni og innihalda eitt orð (kigo) sem tengist þeirri árstíð sem er þegar hækan er ort. Hækur eru ortar í nútíð og innihalda ekki rím. Efni hækunnar eru yfirleitt tvær (sjaldnar þrjár) einfaldar skynmyndir eða upplifanir á náttúrunni.