Hafnarfjörður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![]() |
|
![]() |
|
1400 | |
Kjördæmi | Suðvesturkjördæmi |
Flatarmál – Samtals |
63. sæti 143 km² |
Mannfjöldi – Samtals – Þéttleiki |
3. sæti 23.674 165,55/km² |
Bæjarstjóri | Lúðvík Geirsson |
Þéttbýliskjarnar | Hafnarfjörður |
Póstnúmer | 220, 221, 222 |
Vefsíða sveitarfélagsins |
Hafnarfjörður er bær á höfuðborgarsvæðinu. Þar bjuggu 23.674 manns 1. desember árið 2006 og hefur bærinn vaxið gríðarlega á síðustu árum og áratugum líkt og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa gert. Höfnin sem bærinn er kenndur við var ein stærsta verslunarhöfn landsins allt frá 16. öld og mikil útgerð hefur verið stunduð þaðan í sögunni.
Hafnarfjörður heyrði undir Álftaneshrepp framan af en eftir skiptingu hans árið 1878 varð bærinn hluti hins nýmyndaða Garðahrepps. Hinn 1. júní 1908 fékk Hafnarfjörður kaupstaðarréttindi og varð þá að sjálfstæðu bæjarfélagi. Íbúar voru þá orðnir 1469 talsins.
Skammt sunnan Hafnarfjarðarbæjar er Straumsvík þar sem Alcan á Íslandi rekur álver. Árið 2007 fara fram íbúakosningar um stækkun álversins í Hafnarfirði.
Fyrsta almenningsrafveitan á Íslandi var sett upp 12. desember 1904 í Hafnarfirði af Jóhannesi Reykdal, veitan liggur í gegnum Hamarskotslæk.
[breyta] Bæjarstjórn
Kosningar til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar fóru síðast fram 27. maí 2006.
Núverandi skipting bæjarfulltrúa Í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru ellefu bæjarfulltrúar, skipting fulltrúa er eftirfarandi kjörtímabilið 2006-2010, Samfylkingin hefur sjö bæjarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn þrjá bæjarfulltrúa og Vinstri hreyfingin grænt framboð einn bæjarfulltrúa. Bæjarstjóri er Lúðvík Geirsson (Samfylkingu) og forseti bæjarstjórnar er Gunnar Svavarsson (Samfylkingu). Hafnarfjörður er eina sveitarfélagið á landinu þar sem Samfylkingin hefur hreinan meirihluta.
[breyta] Skólar
Leikskólar: Arnarberg, Álfaberg, Álfasteinn, Garðavellir, Hlíðarberg, Hlíðarendi, Hvammur, Hörðuvellir, Kató, Norðurberg, Smáralundur, Stekkjarás, Tjarnarás, Vesturkot, Víðivellir.
Grunnskólar: Áslandsskóli, Engidalsskóli, Hraunvallaskóli, Hvaleyrarskóli, Lækjarskóli, Setbergsskóli, Víðistaðaskóli og Öldutúnsskóli.
Framhaldsskólar: Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, Iðnskólinn í Hafnarfirði
[breyta] Tenglar
Norðvesturkjördæmi
Akraneskaupstaður | Hvalfjarðarsveit | Skorradalshreppur | Borgarbyggð | Eyja- og Miklaholtshreppur | Snæfellsbær | Grundarfjarðarbær | Helgafellssveit | Stykkishólmsbær | Dalabyggð | Reykhólahreppur | Vesturbyggð | Tálknafjarðarhreppur | Bolungarvíkurkaupstaður | Ísafjarðarbær | Súðavíkurhreppur | Árneshreppur | Kaldrananeshreppur | Strandabyggð | Bæjarhreppur | Húnaþing vestra | Húnavatnshreppur | Blönduósbær | Höfðahreppur | Skagabyggð | Sveitarfélagið Skagafjörður | Akrahreppur
Norðausturkjördæmi
Fjallabyggð | Grímseyjarhreppur | Dalvíkurbyggð | Arnarneshreppur | Hörgárbyggð | Akureyrarkaupstaður | Eyjafjarðarsveit | Svalbarðsstrandarhreppur | Grýtubakkahreppur | Þingeyjarsveit | Skútustaðahreppur | Aðaldælahreppur | Norðurþing | Tjörneshreppur | Svalbarðshreppur | Langanesbyggð | Vopnafjarðarhreppur | Fljótsdalshérað | Fljótsdalshreppur | Borgarfjarðarhreppur | Seyðisfjarðarkaupstaður | Fjarðabyggð | Breiðdalshreppur | Djúpavogshreppur
Suðurkjördæmi
Sveitarfélagið Hornafjörður | Skaftárhreppur | Mýrdalshreppur | Rangárþing eystra | Rangárþing ytra | Ásahreppur | Vestmannaeyjabær | Flóahreppur | Sveitarfélagið Árborg | Skeiða- og Gnúpverjahreppur | Hrunamannahreppur | Bláskógabyggð | Grímsnes- og Grafningshreppur | Hveragerðisbær | Sveitarfélagið Ölfus | Grindavíkurkaupstaður | Sandgerðisbær | Sveitarfélagið Garður | Reykjanesbær | Sveitarfélagið Vogar
Suðvesturkjördæmi
Hafnarfjarðarkaupstaður | Garðabær | Sveitarfélagið Álftanes | Kópavogsbær | Seltjarnarneskaupstaður | Mosfellsbær | Kjósarhreppur
Reykjavíkurkjördæmi suður og Reykjavíkurkjördæmi norður
Reykjavík