Internasjónalinn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alþjóðasöngur verkalýsins eða Internasjónalinn, (upphaflega á frönsku, l'Internationale) er þekktasti söngur jafnaðarmanna og kommúnista, og er með auðþekkjanlegustu lögum heims. Upphaflegi textinn var skrifaður af Eugène Pottier árið 1870, en lagið var samið af Pierre Degeyter árið 1888 (textinn var upphaflega saminn við La Marseillaise).
Internasjónalinn varð eins konar einkennissöngur alþjóðlegu sósíalistahreyfingarinnar á seinni hluta nítjándu aldar, og hefur að nokkru haldið því hlutverki. Hann var notaður sem þjóðsöngur Sovétríkjanna frá 1917 til 1944. Höfundarréttur hvílir á laginu fram til 2014 í Frakklandi, en hann er iðulega hunsaður.