Penisillín
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Penisillín eða pensil[l]ín eru beta-lactam fúkkalyf notuð gegn sýkingum mótækilegra, venjulega gram +, baktería. Penisillín á venjulega við nokkrar gerðir fúkkalyfja og hópa fúkkalyfja sem eiga rætur að rekja til penisillíns.
Efnaformúla penisillínefna er R-C9H11N2O4S.
[breyta] Saga
Efnið var fyrst einangrað úr Penicillium chrysogenum (sem áður var kallaður Penicillium notatum) myglusveppnum. Fyrstur til að taka eftir áhrifum hans á bakteríur var ungur franskur læknisfræðinemi að nafni Ernest Duchesne við rannsóknir á Penicillium chrysogenum árið 1896, þær athuganir náðu þó aldrei lengra.
Fundheppni varð síðar til þess að Alexander Flemming [endur]uppgötvaði áhrif þess á bakteríur árið 1928; þegar hann tók eftir auðu svæði hringinn í kringum Staphylococcus myglusvepp sem hafði sest í bakteríustíu sem hann hafði verið að rannsaka. Hann komst að þeirri niðurstöðu að efni sem sveppurinn gæfi frá sér dræpi bakteríurnar. Hann komst síðar að því að sveppurinn í tilraunafatinu var Penicillium notatum með hjálp sveppafræðings og þaðan er nafn sýklalyfsins komið. Hann komst síðar að því að pensillín gat ekki verið í líkamanum nógu lengi til að vinna bug á bakteríum og hætti því rannsóknum 1931. Uppgötvun hans varð síðar til byltinga í læknavísindum 1939 þegar að Howard Walter Florey og lið rannsóknarmanna við Oxford háskóla sýndu fram á hæfileika þess til að drepa sýkla í manneskjum. Þetta varð síðar til fjöldaframleiðslu penisillíns.
Í síðari heimstyrjöldinni varð penisillínið til þess að bjarga mörgum mannslífum úr liðum Bandamanna. Árið 1944 kom penisllín fyrst á almennan markað.
Efnisbygging penisillíns var ákvörðuð af Dorothy Crowfoot Hodgkin snemma á árið 1940, sem gerði gerviefnaframleiðslu mögulega. Hópur vísindamanna í Oxford sem leiddur var af ástralanum Howard Walter Florey og samanstóð meðal annars af Ernst Boris Chain og Norman Heatley, uppgötvuðu aðferð til að fjöldaframleiða lyfið. Florey og Chain deildu [nóbelsverðlaun]]unum í læknisfræði 1945 ásamt Fleming fyrir hans störf. Penisillín er nú mest notaðasta sýklalyfið og er enn notað fyrir margar Gram-jákvæðar bakteríusýkingar.