7. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2006 Allir dagar |
7. júní er 158. dagur ársins (159. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 207 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 1494 - Spánn og Portúgal skrifuðu undir samkomulag sem skipti Nýja heiminum milli þessara tveggja landa.
- 1654 - Loðvík XIV var krýndur konungur Frakklands.
- 1692 - Jarðskjálfti skók Port Royal, á Jamæku, og drap að minnsta kosti 1600 og særði 3000 alvarlega. Skjálftinn stóð yfir í um 3 mínútur.
- 1800 - David Thompson komst að upptökum Saskatchewan-ár í Manitoba.
- 1832 - Asísk kólera drap um 6.000 manns í syðri hlutum Kanada.
- 1862 - Bandaríkin og Bretland ákváðu að hætta þrælasölu.
- 1863 - Mexico-borg var hertekin af Frökkum.
- 1904 - Íslandsbanki hinn eldri tók til starfa. Bankinn hafði einkarétt á seðlaútgáfu og starfaði til ársins 1930.
- 1914 - Fyrsta skipið sigldi í gegnum Panama-skurðinn.
- 1929 - Vatíkaniðfékk fullveldi.
- 1935 - Pierre Laval varð forsætisráðherra Frakklands.
- 1938 - Douglas DC-4 flaug í fyrsta sinn.
- 1940 - Hákon VII Noregskonungur, Ólafur krónprins og norska ríkisstjórnin fóru frá Tromsø og dvöldust í útlegð í London á meðan styrjöldin stóð.
- 1945 - Hákon VII Noregskonungur sneri aftur til Noregs með fjölskyldu sinni, eftir 5 ár í útlegð á Bretlandi.
- 1951 - Í Fossvogskirkjugarði var afhjúpað minnismerki um þá 212 bresku hermenn, sem létust hér á landi á árum seinni heimsstyrjaldarinnar.
- 1982 - Priscilla Presley opnaði Graceland almenningi. Baðherbergið þar sem Elvis Presley lést fimm árum áður var þó haft lokað.
- 1986 - Sjóminjasafn Íslands var opnað í Hafnarfirði í tengslum við Þjóðminjasafnið.
- 1992 - Nýr Herjólfur kom til Vestmannaeyja, skip sem getur flutt 480 farþega og 62 fólksbíla í ferð.
[breyta] Fædd
- 1807 - Tómas Sæmundsson, prestur og einn Fjölnismanna (d. 1841).
- 1837 - Alois Hitler, faðir Adolfs Hitler (d. 1903).
- 1848 - Paul Gauguin, franskur listmálari (d. 1903).
- 1862 - Philipp Lenard, austurrískur eðlisfræðingur og verðlaunahafi eðlisfræðiverðlauna Nóbels (d. 1947).
- 1879 - Knut Rasmussen, grænlenskur landkönnuður (d. 1933).
- 1917 - Dean Martin, bandarískur leikari (d. 1995).
- 1940 - Tom Jones, velskur söngvari.
- 1945 - Wolfgang Schüssel, Kanslari Austurríkis.
- 1952 - Liam Neeson, Norður-ískur leikari.
- 1958 - Prince, bandarískur söngvari.
- 1975 - Allen Iverson, bandarískur körfuknattleiksmaður.
- 1981 - Anna Kournikova, rússnesk tenniskona.
[breyta] Dáin
- 1954 - Alan Turing, enskur stærðfræðingur og rökfræðingur (d. 1912).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |