2. júní
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maí – Júní – Júl | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | |
2006 Allir dagar |
2. júní er 153. dagur ársins (154. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 212 dagar eru eftir af árinu.
[breyta] Atburðir
- 567 - Benedikt I varð páfi.
- 657 - Eugene I varð páfi.
- 1541 - Ögmundur Pálsson, síðasti kaþólski Skálholtsbiskupinn, var handtekinn og fluttur nauðugur úr landi. Hann dó á leiðinni.
- 1707 - Stóra bóla barst til Eyrarbakka með farskipi. Sóttin herjaði um allt Ísland og var mannskæðasta farsótt síðan í svarta dauða 1402 og varði til um 1709.
- 1780 - Derby kappreiðarnar voru haldnar í fyrsta sinn.
- 1800 - Bólusett við bólusótt í Norður-Ameríku í fyrsta sinn. Þetta var gert í bænum Trinity á Nýfundnalandi.
- 1835 - P.T. Barnum og sirkus hans héldu í fyrstu ferð sína um Bandaríkin.
- 1848 - Slavneska þingið í Prag hófst.
- 1867 - Reykjavig Skydeforening (Skotfélag Reykjavíkur) var stofnað, en það var fyrsta íþróttafélag á Íslandi. Skothúsvegur í Reykjavík dregur nafn af æfingahúsi þess.
- 1875 - Alexander Bell hringdi í fyrsta sinn úr síma.
- 1886 - Grover Cleveland, forseti Bandaríkjanna, gekk að eiga Frances Folsom í Hvíta húsinu, fyrstur bandarískra forseta sem gengur í hnapphelduna í húsinu.
- 1896 - Guglielmo Marconi fékk einkaleyfi á nýjustu uppfinningu sína: útvarpið.
- 1897 - Mark Twain svaraði orðrómi um dauða sinn á þennan hátt: "Sögusagnir um dauða minn voru ýkjur."
- 1909 - Alfred Deakin varð forsætisráðherra Ástralíu í þriðja sinn.
- 1934 - Jarðskjálfti varð norðanlands og olli miklum skemmdum á Dalvík og nágrenni. Hann hefur því verið kallaður Dalvíkurskjálftinn. Stærð hans var um 6,2 stig á Richter.
- 1935 - Hafnaboltamaðurinn Babe Ruth tilkynnti um að hann legði skóna á hilluna.
- 1946 - Þjóðaratkvæðagreiðsla skar úr um að Ítalía yrði lýðveldi í stað konungríkis. Konungur Ítalíu, Umberto II di Savoia, fór í útlegð.
- 1953 - Krýningu Elísabetar II Bretadrottningar var sjónvarpað.
- 1957 - Hrafnista, Dvalarheimili aldraðra sjómanna var tekið í notkun í Reykjavík á tuttugasta sjómannadaginn.
- 1966 - Surveyor áætlunin: Surveyor 1 lenti í Procellarumon-hafi á tunglinu og varð þar með fyrsta geimfar Bandaríkjamanna til að lenda heilu og höldnu á öðrum hnetti.
- 1979 - Jóhannes Páll páfi annar heimsótti heimaland sitt Pólland og varð fyrsti páfi til að heimsækja kommúnistaríki.
- 1986 - Nærri lá að árekstur yrði á milli tveggja farþegaþotna yfir Austurlandi, en því varð afstýrt.
- 1997 - Timothy McVeigh var sakfelldur fyrir morð og hlutverk sitt í að sprengja Alfred P. Murrah bygginguna í Oklahoma-borg í Oklahoma.
- 1999 - Bhútanska útvarpsfélagið sjónvarpaði í fyrsta sinn í konungdæminu.
- 2004 - Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, synjaði fjölmiðlafrumvarpinu um staðfestingu.
[breyta] Fædd
- 1840 - Thomas Hardy, enskur rithöfundur (d. 1928).
- 1857 - Edward Elgar, enskt tónskáld (d. 1934).
- 1857 - Karl Adolph Gjellerup, danskur rithöfundur og verðlaunahafi bókmenntaverðaluna Nóbels (d. 1919).
- 1904 - Johnny Weissmuller, bandarískur sundkappi og leikari 1984).
- 1941 - Charlie Watts, enskur tónlistarmaður (The Rolling Stones).
- 1952 - Pete Farndon, breskur bassaleikari (The Pretenders) (d. 1983).
- 1976 - Tim Rice-Oxley, enskur tónlistarmaður (Keane).
- 1989 - Freddy Adu, knattspyrnumaður frá Ghana.
[breyta] Dáin
- 1876 - Hristo Botev, búlgarskur byltingarsinni (f. 1848).
- 1882 - Giuseppe Garibaldi, ítalskur byltingarsinni (f. 1807).
- 1994 - Henry Mancini, tónskáld (f. 1924).
- 1999 - Junior Braithwaite, jamæskur tónlistarmaður (The Wailers) (f. 1949).
Mánuðirnir samkvæmt Gregoríska og Júlíska tímatalinu auk dagafjölda þeirra |
---|
Janúar (31) | Febrúar (28 (29 á hlaupári)) | Mars (31) | Apríl (30) | Maí (31) | Júní (30) | Júlí (31) | Ágúst (31) | September (30) | Október (31) | Nóvember (30) | Desember (31) |