G8
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
G8 (Group of Eight) eru samtök átta af stærstu efnhagsveldum heims, þau eru: Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Ítalía, Japan, Kanada, Rússland og Þýskaland. Samanlagt mynda þessi lönd 65% af hagskerfi heimsins. Þekktasta starfsemi G8 felst í hinum árlega fundi leiðtoga ríkjanna en einnig eru haldnir margir minni fundir.
G8 er ekki formleg alþjóðastofnun með höfuðstöðvar eða eigið starfsfólk heldur skiptast aðildarríkin á að fara með forsæti í samtökunum eitt ár í senn og taka þá jafnframt að sér að hýsa þá fundi sem haldnir eru á vegum þeirra, þar á meðal þriggja daga leiðtogafund um mitt árið. Á fundunum er fjallað um efnahagsmál, alþjóðastjórnmál, hernaðarmál, löggæslu, umhverfismál og hvað annað sem skiptir máli í alþjóðlegu samhengi.
Upphaf G8 samstarfsins má rekja til þess að forseti Frakklands, Valéry Giscard d'Estaing bauð leiðtogum 6 stærstu iðnríkjanna til fundar í Frakklandi árið 1975 og lagði til að slíkir fundir yrðu haldnir árlega, sá félagsskapur var kallaður G6. 1976 varð G7 til með þátttöku Kanada. Eftir lok kalda stríðsins fór Rússland smátt og smátt að taka meiri þátt í starfi samtakanna og varð fullgildur meðlimur 1997.