Jacques Cartier
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Jacques Cartier (31. desember 1491 – 1. september 1557) var franskur landkönnuður sem er almennt álitinn einn af mikilvægustu könnuðum Kanada. Hann kannaði einkum það svæði í Austur-Kanada sem síðar átti eftir að verða þungamiðja landnáms Evrópubúa þar. Hann fór þrjár ferðir til Kanada 1534, 1535-1536 og 1541-1542. Upphaflegt takmark hans var að finna norðvesturleiðina til Asíu. Í því skyni kannaði hann Nýfundnaland og sigldi upp Lawrence-fljót, hitti innfædda og helgaði land Frakkakonungi.