Móna Lísa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Móna Lísa (ítalska og spænska: La Gioconda; franska: La Joconde) er olíumálverk á asparfjöl eftir Leonardo da Vinci. Það er í eigu franska ríkisins og er til sýnis á Louvre-safninu í París.
Myndin sýnir konu sem brosir „torræðu“ brosi, sem sumir telja dularfyllsta bros heimsins.