Viðeyjarstjórnin
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Viðeyjarstjórnin var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins sem sat við völd á Íslandi frá 1991 til 1995. Viðeyjarstjórnin fékk nafn sitt af því að Davíð Oddsson bauð Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra til stjórnarmyndunarviðræðna út í Viðey að loknum Alþingiskosningum 20. apríl 1991. Þegar Steingrímur Hermannsson baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt 23. apríl 1991 fékk Davíð Oddsson stjórnarmyndunarumboðið. Viðeyjarstjórnin tók við völdum 30. apríl 1991.
Davíð Oddsson var forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson var utanríkisráðherra. Salóme Þorkelsdóttir var forseti Alþingis. Viðeyjarstjórnin sat eitt kjörtímabil.
Ýmsir töluðu um nýja viðreisnarstjórn þegar Viðeyjarstjórnin var mynduð þar sem sömu flokkar áttu hlut að máli í bæði skiptin.
[breyta] Verk
Ísland gerðist aðili að EES í tíð Viðeyjarstjórnarinnar.
[breyta] Ráðherrar og ráðuneyti
Ráðherra frá | Forsætis | Hagstofa | Utanríkis | Fjármála | Sjávarútvegs | Dóms | Iðnaðar | Viðskipta | Heilbrigð | Mennta | Landbún | Samgöngu | Félags | Umhverfis |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
30. apríl 1991 |
Davíð Oddsson (D) | Jón Baldvin Hannibalsson (A) | Friðrik Sophusson (D) | Þorsteinn Pálsson (D) | Jón Sigurðsson (A) | Sighvatur Björgvinsson (A) | Ólafur G. Einarsson (D) | Halldór Blöndal (D) | Jóhanna Sigurðardóttir (A) | Eiður Guðnasson (A) | ||||
14. júní 1993 |
Sighvatur Björgvinsson (A) | Guðmundur Árni Stefánsson (A) | Össur Skarphéðinsson (A) | |||||||||||
24. júní 1994 |
Sighvatur Björgvinsson (A) | Guðmundur Árni Stefánsson (A) | ||||||||||||
12. nóvember 1994 |
Rannveig Guðmundsdóttir (A) |